27.2.06

Öskubuska

Á föstudagskvöldið fórum við mæðgur (ég og Guðný), ásamt Sigrúnu Berglindi og Rán í Óperuna og út að borða á Sólon. Þar sáum við meira að segja annan aðalsöngvarinn og sjarmörinn Garðar Cortes, en hann var að panta sér mat. Við vorum að hafa áhyggjur að því að hann yrði of seinn fyrir sýninguna. Guðnýju fannst ekki amalegt að sjá hann þarna og ekki síðar að hann skyldi valhoppa með matinn undir hendinni framhjá glugganum þar sem við sátum.

Óperan Öskubuska stóðst svo sannarlega undir væntingum.Tónlistin er mjög falleg og söngvararnir stóðu sig allir með prýði í leik og söng. Sesselja Kristjánsdóttir, mezzósópran, var yndisleg í hlutverki Öskubusku og röddin hennar flauelsmjúk og fögur. Hlín Pétursdóttir, fyrrum söngfugl í Kammerkórnum, fór skemmtilega með hlutverk annarrar stjúpsysturinnar; fín leikkona og syngur vel. Bergþór Pálsson lék og söng af tærri snilld. Garðar Thór fór líka fallega með sitt hlutverk. Kórinn var sérlega góður og hljómsveitin var frábær. Ég lét ánægju mína í ljós með því að klappa og stappa í gólfið þegar sýningunni lauk... og eitthvað lét ég í mér heyra líka.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home