Sprengidagur
Ég hélt ég kæmist ekki á kóræfingu í kvöld eftir salkjötsátið og baunasúpuna; ég þurfti að skipta um föt og fara í eitthvað sem gaf meira eftir en gallabuxur, maginn þandist út og ég gat alls ekki setið. Prinsessan mín sagði að það væri sprengidagur og þetta tilheyrði, en sannleikurinn er sá að ég borðaði ekki mikið, þannig að ég held að saltkjöt sé frekar óhollur matur. Hvað um það, maginn jafnaði sig og var bara orðin nokkuð eðlilegur þegar ég kom á æfinguna og ég gat meira segja sungið. Heimilisfólkinu og Helgu Jónu, sem dreif sig austur í baunasúpuna, fannst hún alveg ljómandi góð og það fannst mér líka.
Og þá er það öskudagurinn á morgun. Ég ætla að vera smiður.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home