4.2.06

Var að koma úr lagningu fyrir þorrablótið í kvöld. Alltaf gaman að fara til Gunnellu; við getum allavega hlegið. Ungur herramaður sem sat í stólnum við hliðina á mér heimtaði að fá sams konar kaffi og við vorum að drekka, því við flissuðum svo mikið. Ég var reyndar að segja henni frá óförum mínum í versluninni Pipar og Salt, en ég afrekaði það þegar ég var á leiðinni út að reka töskuna mína í útstillinguna í glugganum, sem var á mörgum hæðum, með þeim afleiðingum að hluti hennar hrundi niður á gólf. Sem betur fer brotnaði bara ein undirskál, og ég bauð borgun, en þar sem afgreiðslukonan var sannfærð um að þetta væri óviljaverk, þurfti ég ekki að borga en ég baðst að sjálfsögðu innilegrar afsökunar. Þetta var mjög pínlegt fyrir mig þar sem mikið var að gera í búðinni (þess vegna var svo þröngt!) Og þetta fannst Gunnellu fyndið.
Hárgreiðslukonan síflissandi bauð mér upp á cappoccinó og þegar ég var að gæða mér á fyrsta sopanum beindi hún (óvart, held ég) hárþurrkunni niður í bollann, þannig að það frussaðist úr bollanum út um allt og yfir mig, en ég var sem betur fer klædd í gúmmísvuntu, þannig að það kom ekki að sök. Og nú upphófst önnur hlátursgusa.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home