28.3.06

Þvílíkur dagur

...Kom heim úr skólanum kl. 19:30 til að ná í kórmöppuna. Æfing hjá Söngfélaginu byrjaði að venju kl. 20:00. Var þá búin að vera í skólanum frá kl. 8:00 í morgun. Kenna meira að segja forfallakennslu í tvo tíma. Sitja kennarafund og kenna konunum mínum á tölvunámskeiðinu. Þetta var síðasti tíminn hjá byrjendahópnum. Þær komu með fullt af með-læti með sér sem við gæddum okkur á í kaffipásunni. Það var einstaklega gaman að kenna þessum elskum. Mér fannst þeim fara mikið fram á námskeiðinu.

Það er alltaf gaman á söngæfingu hjá Söngfélaginu. Eftir æfingu eru það fastir liðir eins og venjulega, að við mæðgur setjumst fyrir framan sjónvarpið og horfum á Mæðgurnar (sem prinsessan hefur tekið upp fyrr um kvöldið). Þetta var frekar leiðinlegur þáttur í kvöld. Ég horfði á hann með öðru auganu meðan ég leitaði að tveimur lögum eftir Gunnar Reyni, sem Hilmar Örn bað mig að finna. Það var búið að ákveða að konurnar úr kórnum syngju eingöngu á útgáfutónleikunum í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Nú hefur Hilmari snúist hugur og vill að karlarnir sláist í hópinn. Og þá bætast við þrjú lög! Halleljúa!

Óskar tengdasonur á afmæli í dag.

27.3.06

27. mars

Ég komst að því, þegar ég rak augun í afmælisdagatalið áðan, að ég þekki fjóra sem eiga afmæli í dag.

Áttræður er móðurbróðir Sigga míns. Við fjölskyldan heimsóttum hann í gær á Skjól. Hann þjáist af minnisleysi. Mér var hugsað til móður minnar sem er nýorðin áttræð, hvað heilsan skiptir miklu máli. Hvað við erum heppin að eiga svona hressa og fríska móður, ömmu og tengdamömmu.

Inga Birna á Vatnsleysu á afmæli í dag. Ég hitti hana í Skálholti í gærkveldi og var að hugsa um að óska henni til hamingju með afmælið. En mér fannst vera lengra í það og hætti við. Vildi ekki vera of ýkt. Ég dauðsé eftir því núna. Ég veit hún hefði orðið svo hissa! Og glöð.

Sólveig Gyða fyrrum samkennari minn í Þorlákshöfn á líka afmæli í dag.

Og hún Elfa mín Eyþórsdóttir "gullið úr F-bekknum" bekkjasystir mín og vinkona úr Kennaraskólanum.

Ég sendi þessu mæta fólki mínar bestu hamingjuóskir.

Brynjólfsmessa

Ég fór í Skálholt í gærkveldi í messu. Í messuna var flettuð Brynjólfsmessa eftir Gunnar Þórðarson í fullri lengd. Þrír kirkjukórar sungu; úr Grafavogskirkju, Keflavík og Skálholti, en þetta er samstarfsverki þessara þriggja kirkna. Barnakórar og unglingakórar úr þessum kirkjum sungu með í nokkrum köflum. Díddú og Jóhann Friðgeir sungu einsöng og tvísöng með kórunum. 25 manna hljómsveit lék undir.

Brynjólfsmessan er mjög fallegt verk. Flytjendurnir stóðu sig allir með mikilli prýði. Hákon Leifsson var stjórnandi. Kórstjórar eru: Hörður Bragason ( í Grafavogskirkju) og Hilmar Örn Agnarsson (í Skálholti). Kórstjórar barna- og unglingakóranna eru: Hilmar Örn, Helga Magnúsdóttir (Keflavíkurkirkju) og Oddný Jóna Þorsteinsdóttir (Grafavogskirkju).

Þetta var frábær veisla. Takk fyrir mig.

26.3.06

Árshátíð

Árshátíðin Í Básnum var hin skemmtilegasta. Maturinn var mjög góður.

Í forrétt fengum við kryddleginn hörpufisk í sveppamauki. Aðalrétturinn var kryddleginn lambavöðvi Marel (ætli kokkurinn heiti Marel?) með bakaðri kartöflu. Þessu var skolað niður með kaffi og konfekti. Konfektið virtist vera heimatilbúið. Gæti þó hafa verið frá Belgíu?

Veislustjóri var Hermann Árnason Oddfellowi. Hann reitti af sér brandarana. Hann er frábær sögumaður og skemmtilegastar eru sögurnar af kynlegum kvistum úr sveitinni hans.

Halla Drífa Jónsdóttir, ung söngkona frá Selfossi, söng ljómandi vel nokkur lög við undirleik Hólmfríðar Sigurðardóttur. Að lokum sýndi danshópur (allt konur) frá Selfossi línudans. Mér skilst að þær hafi skráð sig í Íslandsmeistarakeppni í línudansi svona upp á grín og unnið. Þær voru flottar.

Ég gæti hugsað mér að læra línudans.

25.3.06

Þessa mynd fann ég á vef Fóstbræðra. Til vinstri er Einar Geir móðurbróðir minn, 75 ára gamall. Hann er ótrúlega flottur og yndislegur. Ég held mikið upp á hann.
Til hægri við Einar Geir er Sigurður Jóelsson sem var bekkjarkennari minn í Langholtsskóla í 11 og 12 ára bekk.
Það situr margt eftir sem hann sagði og kenndi mér. Við sungum mikið hjá honum. Þá voru til gul sönghefti sem Ríkisútgáfa námsbóka gaf út með ættjarðarlögum. Þessi bók var notuð til að brjóta upp kennsluna með söng. Þetta voru með ánægjulegustu stundunum í skólanum.


Í morgun mættu konurnar mína í byrjendahópnum á tölvunámskeiðinu í upprifjunartíma. Það er mjög gaman að kenna þeim. Þær eru svo skemmtilegar og jákvæðar. Þeim hefur öllum farið mjög vel fram.

Við hjónin erum að fara á árshátíð hjá Oddfellowum í Básnum í kvöld. Nenni því ekki eins og er. Vildi frekar vera að fara á tónleika hjá Fóstbræðrum eins og síðasta laugardag. Þetta voru bráðskemmtilegir tónleikar. Bróðir minn Þorsteinn söng einssöng ásamt Stefáni Helga Stefánssyni. Þeir stóðu sig báðir mjög vel. Þorsteinn er algjör náttúrutalent með afskaplega fallega rödd...en ó mæ god...myndin af honum í efnisskránni er ekki góð. Gleraugun sem hann er með eru eins og undirskálar. Hvað er í gangi?

Menningarferð

Norræna félagið í Þorlákshöfn fer einu sinni á ári menningarferð til Reykjavíkur. Menningin felst í því að heimsækja til skiptis sendiráð Norðurlandanna. Í þetta sinn var það Sendiráð Danmerkur sem var heimsótt. Við vorum sautján í ferðinni og það var Smári sem ók okkur í nýju rútunni sinni. Sendiherrann Lasse Reimann tók afskaplega vel á móti okkur í mat og drykk. Hann hélt skemmtilega ræðu um starf sitt og fleira.
Formaðurinn okkar, Sigurður Jónsson, þakkaði móttökurnar og hélt tölu um Þorlákhöfn og stærsta björgunarafrek landsins sem átti sér stað á Hafnarskeið austan við Þorlákshöfn á 1718. Siggi afhenti sendiherranum síðan gjafir m.a. hljómdisk með söng Söngfélagsins og Kór Grunnskólans í Þorlákshöfn, auk Lúðrasveitar Þorlákshafnar. Í samkvæminu var formaður Norræna félagsins á Íslandi, Bjarni Daníelsson. Hann hélt líka ræðu og talaði hann um hvað Norræna félagið í Þorlákshöfn væri öflug deild og það væri oft bent á hana, sem aðrar deildir gætu tekið sér til fyrirmyndar. Þegar heimsókn okkar lauk í sendiráðinu fórum við á Ask og fengum okkur að borða, síðan héldum við heim. Flestir heimsóttu Ráðhúskaffi, en ég dembdi mér í rúmið mitt.

24.3.06

Feðginin komu kát heim af leiknum. Þór vann. Þau voru samt frekar æst. Leikurinn var svo spennandi. Prinsessan var svo óðamála að ég átti bágt með að skilja hana. Henni fannst gott að fá útrás á leiknum. Öskraði sig hása. Ég hefði farið á taugum ef ég hefði verið þarna. Lasagnað var tilbúið þegar þau komu heim. Það var bara nokkuð gott en örugglega ekki eins gott og hjá konunni sem kyndir ofninn sinn. Ég átti ekki allt sem stóð í uppskriftinni t.d. átti að vera Mozzarella ostakúlur og þær voru náttúrlega ekki til í Krónunni

Ég var að koma úr íþróttahúsinu þar sem ég hef verið að púla í tækjunum síðasta hálfan mánuð. Mér líður miklu betur í skrokknum og fætinum, sem hefur verið að plaga mig í tvö ár. Ég er búin fara í fimmtíu nuddtímum síðan í haust. Batinn hefur komið hægt og sígandi, en reyndar ekki fyrr en ég sagði sjúkraþjálfaranum fyrir nokkrum vikum að ég hefði verið að hugsa um að prófa tækin eða fara til andalæknis. Henni fannst þetta með andalækninn ekki mjög góð hugmynd. Hún sagði að ég hlyti að vera desperat sem var alveg rétt hjá henni. Hún bretti upp ermarnar og nuddaði á mér bakið hátt og lágt og var lengi að. Hingað til hafði hún lagt áherslu á hné og mjöðm. Hún sagði að þetta væri ljótt bak (held að hún hafi átt við að ég væri með mikla vöðvabólgu?). Viti menn, mér fór að líða skár í fætinum. En þó ekki nógu góð. Síðasta hálmstráið voru tækin sem hafa gert kraftaverk.

Ég ætlaði annars að tala um allt annað. Þegar ég var koma úr íþróttahúsinu mætti ég fjórum karlmönnum sem voru himinháir og frekar kraftalega vaxnir. Það var alveg greinilegt að þetta voru útlendingar. Ég lagði saman tvo og tvo. Þetta voru sem sagt körfuknattleiksmenn Þórs og þjálfari liðsins. Í kvöld er körfuboltaleikur milli Þórs og FSU. Ég vissi að prinsessan ætlaði á leikin. Ég flýtti mér því heim að elda. Var búin að ákveða að elda lasagna eftir uppskrift frá konunni sem kyndir ofnin sinn. Þegar hakkið og gumsið var komið í pottinn fór ég að lesa uppskriftina betur og sá þá að þetta átti að malla í einn til tvo tíma! Það passar þegar feðginin koma af leiknum klukkan hálf tíu er maturinn til. Þetta er allt á ítalska vísu. Hér sit ég og sötra rauðvín frá Terre di Levante, sem við hjónin keyptum á Ítalíu í gönguferðinni í sumar. Því miður er það frekar vont.

10.3.06

Tölvunámskeið

Í gær var annað skiptið sem ég kenndi leikskólakennurum Bergheima á tölvunámskeiði. Í gær voru það proffarnir en á þriðjudaginn voru það froskarnir. Það eru þær sjálfar sem hafa gefið hópunum þessi nöfn. En það vill svo til að þær eru jafnmargar í byrjendahópi og í framhaldshópnum eða 9 í hvorum hóp. Það er mjög skemmtilegt að kenna þeim, þær eru fjörugar og mjög áhugasamar. Hvor hópur fær 12 kennslustundir og mætir í 4 skipti milli kl.17:00 – 19:15 á þriðjudögum og fimmtudögum.

Það er brjálað að gera í undirbúningi fyrir útgáfutónleika sem verða í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 26. mars kl. 15:00, en hann er loksins kominn út diskurinn Til Máríu með lögum Gunnars Reynis, á honum syngur Kammerkór Suðurlands og ýmsir einsöngvarar.

Ég er búin að sækja um styrki í tvo sjóði fyrir næsta verkefni Kammerkórsins. Ég sótti í Minningarsjóð Margrétar og Pokasjóðinn. Vonandi fáum við einhverja aura.

Um hitt og þetta

Það er yndislega fallegt á Skógum undir Eyjaföllum. Kammerkórinn var að æfa þar og gisti aðfaranótt laugardags í gamla skólanum. Móttökurnar voru einstaklega góðar og aðbúnaðurinn einnig. Við Hemmi, Adda og ég keyrðum í ljósaskiptunum þangað á föstudeginum, og í glampandi sólskini heim á laugardeginum. Kórinn var nú hálf þunnskipaður en við reyndum að lesa nýju nóturnar sem við fengum með lögum tónskálda frá Rússlandi og Bandaríkjunum.

Á sunnudaginn fór ég á píanótónleika í Versölum, í Ráðhúsi Ölfuss. Jónas Ingimundarson hélt upp á 40 ára starfsafmæli sitt. Hann spilaði fjögur löng verk, byrjaði á fallegu verki eftir Mozart og endaði á Brams, einnig spilaði hann Shumann og Beethoven, en hann sagðist hafa heitið því þegar hann ákvað að verða píanisti að spila alltaf eitt verk eftir Beethoven á tónleikum. Það sem gerir tónleika Jónasar svo skemmtilega, fyrir utan að hann spilar mjög vel, er spjall hans við áheyrendur um verkin sem hann er að flytja með tóndæmum og sögum og tengingum. Þetta er hans aðalsmerki, ásamt því að vera einn besti undirleikari okkar, enda held ég að flestir einsöngvarar hér á landi hafi sungið við undirleik Jónasar. Hann er alger gullmoli.

Það er alltaf nóg að gera í menningunni hér í Þorlákshöfn. Á fimmtudaginn var opnuð myndlistarsýning í Gallerí undir stiganum á Bæjarbóksafninu en þar sýnir Helga Harðardóttir olíumálverk sem hún hefur málað undanfarin ár, reyndar voru flest frá 2005. Þegar ég kom á sýninguna voru nokkur málverk þegar seld, enda eru þau ódýr.

Í gær 8. mars átti ég brúðkaupsafmæli. Pabbi hefði orðið níræður. Við systkinin og fjölskyldur ætlum að hittast heima hjá mömmu á sunnudaginn í tilefni þessa.
Maðurinn minn færði mér, í tilefni dagsins, rauða öskju sem á var letrað Amor, Amor og innihélt ilmvatn og húðmjólk.

1.3.06

Öskudagur

Ég mætti í búning í vinnuna í morgun klædd í skyrtu og smiðsvesti af manninum mínum og með húfu merkta Byko, ég feilaði á hamrinum.

Nokkrar kennslukonur (kennarar) mættu í skemmtilegum búningum, ein var fýlupoki, klædd í poka en henni tókst ekki að vera í fýlu, önnur var boxari með boxhanska og í slopp, þriðja var Litla stúlkan með eldspýturnar (hún lifði sig inn í hlutverkið allan tímann) og fjórða var skrattinn og fimmta var í enskum knattspyrnubúningi og svo voru nokkrar með mismunandi höfuðskraut og höfuðföt.

Krakkarnir voru í alls konar búningum, ótrúlega frjótt ímyndunarafl hjá þeim. Ég sá einungis fjórar litlar stelpur sem léku Silvíu Nótt og þær voru flottar, maður lifandi.

...Og svo var skólastjórinn með svakalega flott bindi og hatt á höfði, hann bregst aldrei.