25.3.06

Menningarferð

Norræna félagið í Þorlákshöfn fer einu sinni á ári menningarferð til Reykjavíkur. Menningin felst í því að heimsækja til skiptis sendiráð Norðurlandanna. Í þetta sinn var það Sendiráð Danmerkur sem var heimsótt. Við vorum sautján í ferðinni og það var Smári sem ók okkur í nýju rútunni sinni. Sendiherrann Lasse Reimann tók afskaplega vel á móti okkur í mat og drykk. Hann hélt skemmtilega ræðu um starf sitt og fleira.
Formaðurinn okkar, Sigurður Jónsson, þakkaði móttökurnar og hélt tölu um Þorlákhöfn og stærsta björgunarafrek landsins sem átti sér stað á Hafnarskeið austan við Þorlákshöfn á 1718. Siggi afhenti sendiherranum síðan gjafir m.a. hljómdisk með söng Söngfélagsins og Kór Grunnskólans í Þorlákshöfn, auk Lúðrasveitar Þorlákshafnar. Í samkvæminu var formaður Norræna félagsins á Íslandi, Bjarni Daníelsson. Hann hélt líka ræðu og talaði hann um hvað Norræna félagið í Þorlákshöfn væri öflug deild og það væri oft bent á hana, sem aðrar deildir gætu tekið sér til fyrirmyndar. Þegar heimsókn okkar lauk í sendiráðinu fórum við á Ask og fengum okkur að borða, síðan héldum við heim. Flestir heimsóttu Ráðhúskaffi, en ég dembdi mér í rúmið mitt.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home