10.3.06

Tölvunámskeið

Í gær var annað skiptið sem ég kenndi leikskólakennurum Bergheima á tölvunámskeiði. Í gær voru það proffarnir en á þriðjudaginn voru það froskarnir. Það eru þær sjálfar sem hafa gefið hópunum þessi nöfn. En það vill svo til að þær eru jafnmargar í byrjendahópi og í framhaldshópnum eða 9 í hvorum hóp. Það er mjög skemmtilegt að kenna þeim, þær eru fjörugar og mjög áhugasamar. Hvor hópur fær 12 kennslustundir og mætir í 4 skipti milli kl.17:00 – 19:15 á þriðjudögum og fimmtudögum.

Það er brjálað að gera í undirbúningi fyrir útgáfutónleika sem verða í Þjóðmenningarhúsinu sunnudaginn 26. mars kl. 15:00, en hann er loksins kominn út diskurinn Til Máríu með lögum Gunnars Reynis, á honum syngur Kammerkór Suðurlands og ýmsir einsöngvarar.

Ég er búin að sækja um styrki í tvo sjóði fyrir næsta verkefni Kammerkórsins. Ég sótti í Minningarsjóð Margrétar og Pokasjóðinn. Vonandi fáum við einhverja aura.

2 Viltu tjá þig?

At 24 mars, 2006 08:44, Anonymous Nafnlaus said...

Sigga mín.
Er húsnæði til sölu á Þorlákshöfn og heldur þú að ég geti fengið vinnu líka? Mér finnst ég vera að missa af einhverju, eftir að ég fór að lesa bloggið þitt. Ég get ekki betur séð en á Þorlákshöfn séu hlutirnir að gerast og menningarlífið í þvílíkum blóma! Og ég veit að þú átt þinn þátt í því. Sigga mín, til hamingju með þetta allt. Hlakka til að hitta þig.
Bestu kveðjur,
Elfa

 
At 25 mars, 2006 15:23, Blogger Sigga said...

Það væri ekki amalegt að fá þig og þín hingað!!!
Reynum að hittast í apríl.
Kveðja,
Sigga

 

Skrifa ummæli

<< Home