10.3.06

Um hitt og þetta

Það er yndislega fallegt á Skógum undir Eyjaföllum. Kammerkórinn var að æfa þar og gisti aðfaranótt laugardags í gamla skólanum. Móttökurnar voru einstaklega góðar og aðbúnaðurinn einnig. Við Hemmi, Adda og ég keyrðum í ljósaskiptunum þangað á föstudeginum, og í glampandi sólskini heim á laugardeginum. Kórinn var nú hálf þunnskipaður en við reyndum að lesa nýju nóturnar sem við fengum með lögum tónskálda frá Rússlandi og Bandaríkjunum.

Á sunnudaginn fór ég á píanótónleika í Versölum, í Ráðhúsi Ölfuss. Jónas Ingimundarson hélt upp á 40 ára starfsafmæli sitt. Hann spilaði fjögur löng verk, byrjaði á fallegu verki eftir Mozart og endaði á Brams, einnig spilaði hann Shumann og Beethoven, en hann sagðist hafa heitið því þegar hann ákvað að verða píanisti að spila alltaf eitt verk eftir Beethoven á tónleikum. Það sem gerir tónleika Jónasar svo skemmtilega, fyrir utan að hann spilar mjög vel, er spjall hans við áheyrendur um verkin sem hann er að flytja með tóndæmum og sögum og tengingum. Þetta er hans aðalsmerki, ásamt því að vera einn besti undirleikari okkar, enda held ég að flestir einsöngvarar hér á landi hafi sungið við undirleik Jónasar. Hann er alger gullmoli.

Það er alltaf nóg að gera í menningunni hér í Þorlákshöfn. Á fimmtudaginn var opnuð myndlistarsýning í Gallerí undir stiganum á Bæjarbóksafninu en þar sýnir Helga Harðardóttir olíumálverk sem hún hefur málað undanfarin ár, reyndar voru flest frá 2005. Þegar ég kom á sýninguna voru nokkur málverk þegar seld, enda eru þau ódýr.

Í gær 8. mars átti ég brúðkaupsafmæli. Pabbi hefði orðið níræður. Við systkinin og fjölskyldur ætlum að hittast heima hjá mömmu á sunnudaginn í tilefni þessa.
Maðurinn minn færði mér, í tilefni dagsins, rauða öskju sem á var letrað Amor, Amor og innihélt ilmvatn og húðmjólk.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home