Þvílíkur dagur
...Kom heim úr skólanum kl. 19:30 til að ná í kórmöppuna. Æfing hjá Söngfélaginu byrjaði að venju kl. 20:00. Var þá búin að vera í skólanum frá kl. 8:00 í morgun. Kenna meira að segja forfallakennslu í tvo tíma. Sitja kennarafund og kenna konunum mínum á tölvunámskeiðinu. Þetta var síðasti tíminn hjá byrjendahópnum. Þær komu með fullt af með-læti með sér sem við gæddum okkur á í kaffipásunni. Það var einstaklega gaman að kenna þessum elskum. Mér fannst þeim fara mikið fram á námskeiðinu.
Það er alltaf gaman á söngæfingu hjá Söngfélaginu. Eftir æfingu eru það fastir liðir eins og venjulega, að við mæðgur setjumst fyrir framan sjónvarpið og horfum á Mæðgurnar (sem prinsessan hefur tekið upp fyrr um kvöldið). Þetta var frekar leiðinlegur þáttur í kvöld. Ég horfði á hann með öðru auganu meðan ég leitaði að tveimur lögum eftir Gunnar Reyni, sem Hilmar Örn bað mig að finna. Það var búið að ákveða að konurnar úr kórnum syngju eingöngu á útgáfutónleikunum í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Nú hefur Hilmari snúist hugur og vill að karlarnir sláist í hópinn. Og þá bætast við þrjú lög! Halleljúa!
Óskar tengdasonur á afmæli í dag.
Sigríður Guðnadóttir 
3 Viltu tjá þig?
Já Sigga mín, ég vil sko tjá mig. Hvernig í ósköpunum hefur það farið fram hjá mér að þú ert byrjuð að blogga aftur? Ég hætti að gá fyrir meira en ári síðan held ég. En ég er glöð...því mér fannst alltaf gaman að lesa bloggið þitt. Velkomin til baka!
Takk fyrir að kommenta á mína síðu og þar með að opna þessa síðu fyrir mig...
Tek undir með Sissu. Hef ekki kíkt á þig lengi...lengi. Takk Sissa fyrir að benda mér og fleirum á að Sigga sé komin í blogggírinn aftur
Hæ, fann þig!!!
Skrifa ummæli
<< Home