8. mars
Steini bróðir, mamma, Kara systir, ég og Toffi bróðir.
Pabbi hefði orðið níræður 8. mars. Mamma, við systkinin og börn hittumst við leiðið hans og sungum Ó, Jesú bróðir besti. Pabbi söng þennan sálm við ýmis tækisfæri og spilaði undir á píanó, ef svo bar undir. Pabbi minn var ekki mjög lagviss maður en hann lét það ekki aftra sér frá því að tjá sig í tónlistinni. Pabbi var mikill húmoristi og hvers manns hugljúfi.
P.S. Brúðkaupsafmælið okkar Sigga (8. mars 1975).
Sigríður Guðnadóttir 
1 Viltu tjá þig?
Þið voruð aldeilis heppin að vera af Vatnsleysukyninu í hina ættina. Þaðan kemur ,,lagvissan" og raddirnar fögru. Húmorinn gæti sem best verið Selfysskur! Amk er blandan góð!
Skrifa ummæli
<< Home