10.4.06

Ferming

Rakel, Siggi og Rebekka.
Í dag vorum við hjónin í fermingarveislu í Skálholti hjá Rakel frænku minni. Hún er dóttir Gumma frænda og Guðríðar. Þetta var hádegisverðarveisla með miklum og góðum mat. Í veislunni talaði afi fermingarbarnsins, Siggi frændi á Heiði, til sonardóttur sinnar. Hann talaði svo skemmtilega og viturlega. Hann minntist síns fermingardags, en hann var fermdur fyrir hart nær sjötíu árum (f. 1924). Hann sagðist muna vel eftir fermingardeginum sínum. Á hann voru saumuð föt, en vegna bágs efnahags voru buxurnar hafðar stuttar. Amma prjónaði á hann hnésokka. Hann sagðist hafa verið svo stoltur af jakkafötunum sínum. 13 krakkar fermdust um leið og hann. Presturinn tók börnin ekki til altaris fyrr en um sumarið, því það var ekki tími til þess þarna. Fólk þurfti að fara ríðandi heim og þá var eftir að drekka fermingarkaffið áður en farið var í fjós. Lagkaka hvít og brún voru á boðstólnum ásamt öðru meðlæti og súkkulaði með rjóma. Siggi sagðist muna enn eftir bragðinu af lagkökunum. Síðan bað hann fermingarbarnið að ganga á Guðs vegum, en þannig hafði amma hans alltaf kvatt hann. Svo hóf þessi fullorðni maður upp raust sína og söng Fyrr var oft í koti kátt með bjartri og fallegri tenórrödd og Siggi frændi hans í vesturbænum á Vatnsleysu, á svipuðu reki, lék undir á flygilinn. Allir tóku undir eins og til var ætlast í sínum röddum. Þar í sveit er ekki sungið einraddað. Áfram var sungið og hlýtt á fermingarbarnið leika tvo lög á flygilinn. Þá var borið fram kaffi og fermingarkaka.
Á gjafaborðinu var hnakkur og beisli innan um allar hinar gjafirnar... og hesturinn var ekki langt undan. Posted by Picasa

2 Viltu tjá þig?

At 10 apríl, 2006 13:59, Anonymous Nafnlaus said...

Það veit ég að Hörður Ingvars hefði alveg viljað vera þarna og þruma bassann með Sigga vini sínum!

 
At 10 apríl, 2006 18:19, Anonymous Nafnlaus said...

Hann hefur verið þarna í anda...sjarmörinn sá.

 

Skrifa ummæli

<< Home