8.4.06

Fimleikamótið í Íþróttamiðstöðinni í Þorlákshöfn...


...gekk alveg ljómandi vel. Það voru um 220 iðkendur. Mótinu var tvískipt. Yngri hóparnir voru f.h. og eldri e.h. Yngri hóparnir byrjuðu kl. 9:00 á upphitun. Við vorum hálftíma á undan áætlun, þannig að öllu var lokið kl.14:30.

Í lok mótsins kom kona til okkar og þakkaði fyrir mjög vel skipulagt mót. Ég held að hrósið eigi Ester Hjartardóttir skilið. Af öllum öðrum ólöstuðum ber hún hitann og þungann af þessu móti og fimleikadeildinni yfir höfuð.

Elstu stelpurnar í fimleikadeildinni voru líka mjög duglegar að hjálpa til við framkvæmdina og einnig voru nokkrir hörkuduglegir foreldrar sem aðstoðuðu.

Ekki má gleyma að iðkendur Fimleikadeildar Þórs stóðu sig með prýði. Þeir voru í þriðja sæti, bæði hjá yngri og eldri. Posted by Picasa

1 Viltu tjá þig?

At 09 apríl, 2006 01:39, Anonymous Nafnlaus said...

Mikið er þetta´fín mynd af Sigrúnu Sólinni.....

 

Skrifa ummæli

<< Home