18.4.06

Á Húsavík um páska

Við komum heim frá Húsavík í gærkvöldi. Þetta var ánægjuleg vika norður á hjara veraldar. Allt á kafi í snjó. Þetta var algjör afslöppun í faðmi fjölskyldunnar. Ég, Siggi og mamma, stundum Guðný, sváfum í íbúðinni hennar Ágústu frænku, en hún var í Noregi hjá syni sínum Hauki og barnaörnum um páskana. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við dveljum á Hjarðarhóli 1...en sennilega það síðasta. Ágústa og dætur eru að flytja á mölina í vor.

Dagarnir liðu í indælis ró. Morgun- og hádegismat slegið saman. Farið í sund. Kaffi. Kvöldmatur undirbúinn. Fataskipti og smáhressing fyrir matinn. Sjónvarpsgláp. Sumir brugðu sér á skíði. Lyftan við húsdyrnar og allt frítt.

Steingerður er nýflutt í stærri íbúð og búin að koma sér vel fyrir í rúmgóðri íbúðinni. Helga og Óskar bættust í hópinn á laugardaginn og þá vorum við orðin 10 og það fór vel um okkur öll.

Á laugardaginn skruppum við inn á Akureyri á Glerártorg og þar hitti ég Gísla og Lúllý og nokkra kunningja. Við fórum síðan á Bláu könnunni og þar hitti ég fleiri kunningja og hana Möggu mína Blöndal. Alltaf jafn sæt og yndisleg. Ég gekk beint í flasið á Hrefnu minni í Blómabúð Akureyrar.

Mér finnst stundum tíminn standa í stað þegar ég kem til Akureyrar í þeim skilningi að ég hitti sama fólkið á sömu stöðum við sömu iðju og þegar ég bjó þar fyrir 10 árum.

Því miður gátum við ekki farið í heimsóknir með allt þetta lið með okkur...átta manns. Það bíður betri tíma.

Á Akureyri eignaðist ég yndislega vini og góða kunningja. Það er bara kjaftæði að Akureyringar séu lokaðir og erfitt að kynnast þeim.

Heimferðin gekk vel. Gott að vera í samfloti með Helgu og Óskari. Það kom nefnilega í minn hlut að keyra. Maðurinn minn var veikur og ekki í ökufæru ástandi...En það er allt of langt milli Húsavíkur og Þorlákshafnar.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home