Hvað er ást?

Ást er... að maðurinn þinn komi heim í hádeginu með tvær Vikur sem hann hefur haft fyrir að leita að á bókasafninu, af því hann las um morguninn á læknabiðstofu í þeim tvær stuttar greinar sem hann hélt að kæmi sér vel fyrir þig að lesa. Önnur fjallaði um, hvernig best er að lækna kvef og hósta.
Ást er...að hann sjóði vatn með timian, sigti og setji síðan út í það smá hunang...og rétti þér.
Ást er...að hann útbúi meira af seiðinu áður en hann fer í vinnuna svo þú eigir nóg af því það sem eftir lifi dagsins.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home