5.4.06

Lífið er saltfiskur...


Ég hef hvorki fyrr né síðar þurft að salta saltfisk fyrr en í kvöld. En einhvern tímann verður allt fyrst.

Stúlkan í uppáhaldsfiskbúðinni minni (eina búðin í plássinu) sagði mér reyndar að hann væri mildur, en fyrr má nú rota en dauðrota.

Ég er samt mjög ánægð með fiskbúðina. Það var nefnilega enginn hægðarleikur fyrir mig að nálgast fisk í fiskiþorpinu áður en hún opnaði. Ég vona því í lengstu lög að henni verði ekki lokað eins og lúðueldinu.

Myndin er af Sigurði Jakobssyni fyrrum eldisstjóra í Fiskey. Hann lék í "heimildamynd" sem ég gerði um lúðueldið á námskeiðinu Nám og kennsla á Netinu í Kennó fyrir tveimur árum.

Það var alveg hrikalega skemmtilegt að búa myndina til. Aðstoðamaður minn var Sigrún Berglind. Við byrjuðum seinni part föstudags og vorum búin um kvöldmatarleytið. Eiginkona eldisstjórans bauð okkur í mat og Sigga mínum líka. Það var í fyrsta skiptið sem ég smakkaði sandhverfu. Hún var himnesk. Þetta var eftirminnilegur dagur. Mikið hlegið.

6 Viltu tjá þig?

At 05 apríl, 2006 20:13, Blogger Guðrún said...

Ég hef sko unnið í saltfiski!!! Það var ógeðslega gaman.
Já,..það hefur kannski verið vegna þess að ég átti saltfiskverkunina...jæja, það er nú allt önnur saga.

 
At 05 apríl, 2006 23:00, Anonymous Nafnlaus said...

Æðislegt, ógleymanlegt kvöld, sandhverfukvöldið okkar góða.

 
At 06 apríl, 2006 12:59, Anonymous Nafnlaus said...

Rétt til getið þetta er einmitt hún. Hvers vegna þurftir þú endilega að fá saltfisk í gær??????????

 
At 06 apríl, 2006 15:19, Anonymous Nafnlaus said...

Anna Jóh said...
Rétt til getið þetta er einmitt hún. Hvers vegna þurftir þú endilega að fá saltfisk í gær??????????

12:59 PM

 
At 06 apríl, 2006 22:45, Blogger Sigga said...

Var bara í soddan saltfiskstuði. Kartöflurnar og rófurnar...hmmm.

 
At 06 apríl, 2006 23:28, Blogger Sigga said...

Ég meina saltfisks-stuði.

 

Skrifa ummæli

<< Home