
Að búa í litlu samfélagi hefur ótal kosti. Maðurinn minn fór í bakaríið í hádeginu og ætlaði að kaupa sitt lítið að hverju. Þá var honum sagt að konan hans hefði verið að versla fyrir stuttu og hún hefði keypt þetta og hitt. Hann keypti þá það sem henni hefði láðst að kaupa; niðurskorið brauð.
3 Viltu tjá þig?
Æ en krúttlegt!
Það hefði nú ekki verið slæmt að sitja með ykkur hjónakornum og gæða sér á sunnlensku brauði. Ég lít alltaf inn á síðuna með jöfnu millibili til að fylgjast með og hugsa alltaf um hvað ég sakna þín mikið.
Er þetta ekki örugglega Anna mín Jó? Það veit sá sem allt veit, að ég sakna þín líka.
Skrifa ummæli
<< Home