Mismæli
- Er frítt í tölvu? - Spurði einn nemandi mig. Meinti sennilega hvort það væri frjálst.
Ég óð að vinkonu minni um daginn og sagði: - Takk fyrir- en ætlaði að segja góðan daginn.
Á sumardaginn fyrsta óskaði ég einhverjum gleðilegs árs.
Fyrir nokkrum árum strunsaði ég að einni sem mér fannst vera nokkuð veikindaleg og spurði:
- Ertu feit? - ætlaði að spyrja hana hvort hún væri veik. Þetta var ekki fyndið því viðkomandi var ansi feit.
Leiðinlegt að vera svona vitlaust.
Sigríður Guðnadóttir 
3 Viltu tjá þig?
Orðheppin Sigga! Ég hefði nú bara hlegið ... Sissaþó ég sé feit!
Eitthvað skrýtið kommnet fá mér.
En...ég hefði nú bara hlegið þó ég sé feit :-)
Hún hló...En ég reyndi lengi að klóra í bakkann.
Skrifa ummæli
<< Home