Mórallinn...
er að drepa mig. Tíundi bekkur er að sýna Greace núna upp í skóla undir stjórn Halldórs skólastjóra og hér sit ég alein heima í stað þess að druslast af stað.Þetta eru alltaf frábærar sýningar hjá tíunda bekk og skólanum til sóma. Prinsessan mín fór með vinkonum sínum. Reyndar var ég búin að sjá glefsur úr sýningunni...jú það var ein afsökunin af mörgum. Ég hef ekkert mér til málsbóta. Ég verð bara að burðast með samviskubitið og setja undir mig hausinn þegar ég mæti í skólann á morgun.
Sigríður Guðnadóttir 
1 Viltu tjá þig?
En það var uppselt. Mér var sagt að ekki væri hægt að fá miða.
Gaf það alveg frá mér. Við verðum bara að muna John Travolta í stað Daníels Hauks...Ég veit að Danni er samt ekki síðri. Og allir krakkarnir standa sig víst rosalega vel. Góður grunnur!!!!
Skrifa ummæli
<< Home