25.4.06

Á örðrum degi sumars

Þessi elska og hennar heittelskaði eiginmaður bauð okkur á föstudaginn, á öðrum degi sumars, í grillaðan sjóbirting. Eiginmaðurinn veiddi fiskinn. Hann var grillaður með fetaosti ofan á, borinn fram með salati, hunangssósu og bökuðum kartöflubátum...nammi, nammi, namm. Frábær matur. Annað skiptið sem mér og mínum er boðið í sjóbirting hjá fluguveiðimanninum. Megi hann veiða stóran fisk í sumar...og bjóða mér aftur í mat!

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home