Síðasti vetrardagur
Ég var að skoða myndir áðan og þá rifjaðist upp fyrir mér að kennaraliðið fór í Rauða húsið á Eyrarbakka síðasta vetrardag. Það er venja hjá okkur að gera okkur glaðan dag þennan síðasta dag vetrar. Við fórum líka í Rauða húsið í fyrra en þá var það á allt öðrum stað í bænum og var rautt. Nú er Rauða húsið komið í hvítt hús á þremur hæðum. Við héldum okkur við kjallarann, hann er miklu rýmri en í því gamla. Við héldum okkur líka við pasta...sem er greinilega uppáhaldsmaturinn okkar?!...Maturinn var góður og félagsskapurinn.
Sigríður Guðnadóttir 
2 Viltu tjá þig?
Síðasta vetrardagsdjammið er nú held ég það sem ég sakna allra mest frá Þorlákshöfn...sniff,sniff!!
Nú ég hélt þú saknaðir mín mest...djók...þetta er alltaf jafn skemmtilegt.
Skrifa ummæli
<< Home