Síðbúin sumarkveðja og sitthvað fleira
Í Íþróttamiðstöðinni stendur yfir heisluvika. Tilgangurinn hlýtur að vera að hvetja bæjarbúa til að nýta sér þessa fínu sundlaug sem við eigum og tækjasalinn með öllu fínu tækjunum. Ég lét tilleiðast og mætti í sund fyrir klukkan sjö í morgun og gærmorgun. Í gær vorum við tvær í lauginni og karlmaður í tækjasalnum. Hann kom svo til okkar í pottinn. Það fór vel á með okkur og um okkur í pottinum. Sami leikurinn endurtók sig í morgun, nema að það var einni konu fleira.
Ég hét því á sumardaginn fyrsta að fara í heilsuátak. Reyna að hreyfa mig meira og passa upp á mataræðið. Ég hef nú reyndar farið í átak á hverjum mánudegi í mörg ár en það hefur einungis varað fram að hádegi. Ég hef prófað að skipta um dag og byrjað á þriðjudegi en hann reyndist ekki hótinu skárri. Ætli ég verði ekki að taka einn dag í einu eins og hinir alkarnir?
Helgin einkenndist af mikilli óhollustu sem ég naut fram í fingurgóma. Ég fékk ekki einu sinni móral þegar ég horfði á hollustuþáttinn Heil og sæl. Ein grundvallarreglan hjá þáttarstjórnendaparinu er að nota ekki sykur...alls engan sykur. Þau skáluðu þó í kampavíni. Annað hvort hef ég misskilið... eða dottað, og eitthvað farið framhjá mér á meðan þeir göldruðu fram þennan heilsudrykk sem þau kölluðu kampavín.
Söngfélagsfélagar og makar fóru í mjög skemmtilega ferð upp í Borgarfjörð á laugardaginn. Við héldum tónleika með Freyjukórnum í Logalandi kl. 17:00 sem heppnuðust mjög vel. Við vorum betri þarna heldur en á sumardaginn fyrsta þegar við héldum tónleika með Lúðrasveit Þorlákshafnar í Versölum. Freyjukórinn syngur ljómandi vel, blaðlaust og með bros á vör!
Við snæddum með þeim afbragðs góðan mat og skemmtum okkur alveg ljómandi vel. Við fórum í marga skemmtilega leiki og lærðum að dansa salsa. Makakórinn okkar tróð upp að venju og gerði það vel.
Það má segja að kórarnir tveir hafi smollið saman eins og flís við rass. Í Freyjukórnum er Gerður systir mín og við hjónin sátum við borðið hjá henni og Sveini mági mínum. Það var aukabónus að vera með þeim.
Við gistum á Fosshótelinu í Reykholti. Þar er góð gistiaðstaða með heitum pottum sem kórfélagar gátu því miður ekki nýtt sér vegna anna. Eitt fannst mér þó stinga í stúf á þessum sögufræga stað, þegar þjónninn talaði ensku við okkur.
- Það er nauðsynlegt að ráða þjóna sem kunna ensku því það eru svo margir túristar hér, sagði ein okkar, þegar ég hafði orð á þessu. Hvað með íslenskuna? Er hún ónauðsynleg í ferðaþjónustu?
Gleðileg sumar!
Sigríður Guðnadóttir 
2 Viltu tjá þig?
Ó þetta var svo gaman ...
Hvort það var!
Skrifa ummæli
<< Home