6.4.06

Skemmtilegur dagur...

Staðreyndin að það styttist óðum í páskafrí kom mér í gott skap strax í morgunsárið.

Við Ester fórum á stúfana til að sníkja gjafir og pening fyrir fimleikamót sem haldið verður hér á laugardaginn. Þar verða yfir 200 iðkendur og er þetta stærsta mót sem haldið hefur verið hér til þessa. Þeir sem við töluðum við tóku okkur afskaplega vel.

Þegar ég kom heim dreif að gesti. Sigrún Berglind kom með bakkelsi frá Mása. Sissa kom með gimsteinana sína tvo. Rebekka leit inn með sína dúllu. Mínir gullmolar tíndust heim, prinsessan og eiginmaðurinn. Því miður heyrir svona gestagangur til undartekninga.

Gylfi og Nanna komu úr Reykjavík og borðuð hjá mér. Reyndar var Nanna að koma til þessa að horfa á skemmtiatriðin hjá fyrrum nemendum sínum sem nú eru komnir í áttunda bekk og héldu árshátíð sína í kvöld á elsta stiginu. Hún var mjög ánægð með frammistöðu þeirra, enda eru skólaskemmtanirnar alltaf skemmtilegar og mikið í þær lagt.

Þegar nemendur Nönnu voru í fjórða bekk flutti þeir leikrit eftir hana: Landnemar í Þorlákshöfn.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home