...því þar er allt sem ann ég; það er mitt Draumaland
Loksins komst ég í tæri við – Draumalandið, sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð eftir Andra Snæ Magnason. Það var skrítin tilfinning að vera stödd inn í bókaverslun í apríl og kaupa þrjár bækur en ekki rétt fyrir jólin. Ég hlakka til að lesa Draumalandið. Og ljóðabækurnar hans Andra Snæs: Bónusljóð og Ljóðasmygl og skáldarán.
Með bækurnar í poka öslaði ég niður Laugaveginn og stefndi niður á Kaffitár í Bankastræti til að fá mér cappochino meðan prinsessan mín var í yfirhalningu á hárgreiðslustofu ofar á Laugaveginum. Það var búið að breyta kaffihúsinu; stækka það um helming síðan ég var þarna síðast og það var sneisafullt að fólki klukkan rúmlega ellefu að morgni. Af hverju er þetta fólk ekki í vinnunni? Ekki eru þetta allt kennarar komnir í páskafrí? Ég settist niður eftir að ég var búin að panta og beið eftir kaffinu. Ég þurfti að færa mig svo að Jakob Frímann Stuðmaður kæmist að borðinu sínu. Ég fór að líta í kringum mig og sá að þarna voru mörg þekkt andlit. Gunnar Gunnarsson píanóleikari, Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur, Björn Thors leikari og fleiri leikarar sem ég kann ekki að nefna, hljómsveitagæjar, örugglega ung ljóðskálds sem sátu með penna og skrifblokkir í kringum ljóðskáldið Elísabetu. Af hverju fer maður hjá sér innan um frægt fólk? Ég fór að reyna að fela bækurnar sem voru í gagnsæjum poka svo fólk héldi ekki að ég þættist vera einhver menningarviti. Ég drakk kaffi mitt sem var afbragðs gott og fór út. Ég var eiginlega samfærð um að allir gestirnir þarna inni væru á móti Kárahnjúkavirkjun. Ég hefði átta að standa upp og veifa Draumalandinu og hrópa: Ég er á móti Kárahnjúkavirkjun og álverum!
Næsti viðkomustaður var uppáhaldskaffihúsið mitt Te og kaffi á Laugaveginum. Ég fór inn til að athuga hvort kaffið væri jafngott þar og á hinum staðnum. Það var alveg eins og mjólkurmynstrið ofan á kaffinu líka. En bollinn var 30 krónum dýrari. Á Næstum grösum þar sem við mæðgur borðuðum hollan og góðan mat sá ég að kaffibollinn þar var 50 krónum ódýrari en á uppáhaldskaffihúsinu mínu.
Við mæðgur keyptum sumarlega skyrtu og bindi í stíl á strákinn okkar. Fórum og heimsóttum mömmu og ömmu að Laugavegi 104 en þar er sú áttræða að afgreiða á útsölumarkaði Verðlistans. Svei mér þá. Búðin var yfirfull af fatnaði svo það lá við að mér sundlaði. Í svona búðum fallast mér hendur. Ég gat ekki betur séð að frú Steingerður væri prýðis sölukona og stimamjúk við kúnnana.
Prinsessan nennti ekki í Kringluna að líta á föt eins og hún hafði ráðgert. Við drifum okkur heim sem betur fer, því þetta rölt upp og niður Laugaveginn hafði kostað mig töluverð fjárútlát.
Helga Jóna var komin í heimsókn þegar við mæðgur komum heim. Óvænt ánægja. Við verðum öll saman fjölskyldan fyrir norðan um páskana. Dæturnar þrjár, tengdasonur, barnabörn og mamma. Í dag leggjum við land undir fót.
Anna Jó vinkona mín átti afmæli í gær 10. apríl sem er einnig afmælisdagur tengdamóður minnar Helgu.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home