7.4.06

Það var þá...


Í gær átti vinur minn á Akureyri afmæli sem ekki er í frásögu færandi (jú annars, það er merkilegt að eiga afmæli). Nema að mér datt í hug skondið atvik í sambandi við hann.

Við kenndum í sama skóla fyrir mörgum árum. Ég hafði kennt eitt ár í skólanum þegar hann byrjaði. Fyrsta skiptið sem ég sá hann vissi ég að okkur myndi verða vel til vina. Mér fannst hártoppurinn sem hann var með hræðilegur, en hvaða máli skipti það. (Mörgum árum síðar henti hann toppnum fyrir róðra). Góð kynni tókust með okkur og mökum okkar. Oft, þegar kennslu lauk fórum við heim til hvors annars og fengum okkur kaffi og spjölluðum. Eitt skipti stóðum við á gatnamótum og biðum eftir umferðarljósi. Ég snéri mér að vini mínum og spurði: Hvort eigum við að fara heim til mín eða þín? Einhverjar vöflur komu á vin minn. Þórhallur prestur, sem við þekktum ágætlega bæði, stóð við hliðina á okkur á ljósunum. Samkvæmt vini mínum gaf hann okkur hornauga. Ég var of vitlaust til að sjá að þessi spurning mín gæti misskilist.

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home