Af mynstri og myndum
Ég fór að venju í sund í morgun. Og viti menn sundlaugin var eins heit og heiti potturinn. Ég skellti mér í pottinn og sleikti sólina. Þannig fór um sundferð þá.
Það er eitt sem er farið að valda mér áhyggjum, þegar ég kem úr pottinum þá er mynstur á enninu. Mynstrið er ekki eftir sundhettu og þetta er ekki alltaf saman mynstrið t.d. í morgun var zikk-zakk mynstur. Eitt skipti fékk ég tígla og annað skiptið doppur. Ég er spennt að vita hvaða mynstur verður á morgun, á kosningardaginn. Ég vona að það komi ekki upp um mig.
Mér finnst auglýsingamyndaspjöld af frambjóðendum í fullri líkamsstærð fráhrindandi. Mér finnst líka alveg óþarfi að vera alltaf að birta heilsíðu auglýsingar í blöðunum með myndum af efstu mönnum á lista, dag eftir dag. Og eins og oft áður er farið að birta myndir af þekktu fólki sem styður þennan og hinn flokkinn eins og það eigi að hafa áhrif á hvað fólk kýs. Ég veit að máttur auglýsinganna er mikill, en mér finnst málefnin stundum týnast í útlits- og persónudýrkun.
Tvær æðislegar stelpur eiga afmæli í dag: Nanna Christiansen og Kolbrún Olga. Til hamingju með daginn elskurnar!
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home