Bæjarferð
Í dag skruppum við fjölskyldan í bæinn til að heimsækja AFS skrifstofuna. Fyrir viku síðan fórum við með umsóknina en þá var hún ekki við sú sem sér um nemana sem fara til útlanda. Við vissum að prinsessan var heldur sein með umsóknina og nú er aðeins um tvö lönd að velja og bæði í Suður- Ameríku fyrir utan Belgíu (flæmskumælandi). Efst á óskalistanum hjá prinsessunni var Ítalía, Argentína í öðru sæti og Brasilía í því þriðja. Upplífgandi frétta á fréttavef Morgunblaðsins um glæpagengi í Brasilíu og átök lögreglu við þau... og dauða fjölda fólks.
Í dag sagði stúlkan að hún væri að reyna að koma henni til Ítalíu og myndi hringja þangað á morgun og athuga stöðuna. Við spurðum hana hvað annað kæmi til greina ef Ítalía væri ekki inni í myndinni. Hún svaraði því til að þau myndu finna eitthvað handa stelpunni. Við spurðum um Argentínu en hún sagði að það væri alveg fullbókað þangað.
Prinsessan vafraði nefnilega um á Netinu í gærkvöldi og skoðaði vefsíður og myndir frá Argentínu og heillaðist af landinu.
----
Ofarlega á Laugaveginum komum við inn í verslun þar sem áttræð kona leið um gólfin og aðstoðaði eldri konur við að finna á sig föt. Hún er ótrúleg hún mamma. Þvílíkur dugnaður. Dóttirin drattaðist um haltrandi og studdi sig við fataslárnar. Djö... er mér annars illt í löppunum og hnjánum. Ég er að fríka út.
---
Í gær fékk ég í pósti ferðaáætlun í sambandi við Færeyjaferðina í sumar. Mér líst vel á hana. Á morgun borga ég inn á námsferð til Krakau í Póllandi sem farin verður í október. Ég ætla að bjóða mínum elskulega eiginmanni með. Þetta verður spennandi ferð.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home