10.5.06

Daginn í dag, daginn í dag...

...gerði Drottinn Guð.

Ég væri alveg til í að hafa veðrið í sumar eins og það er í dag og var í gær, 18 - 20 stiga hiti og sól. Allt í lagi að sólin hverfi annað slagið bak við ský. "Skipti um kjól" eins og frændi minn upplýsti mig sem barn að sólin væri að gera þegar ský dró fyrir sólu.

Gærdagurinn var dásamlegur, aðeins meiri sól en í dag og það bærðist ekki hár á höfði fram eftir degi. Það er svo gaman að sjá hvað fólk gleðst yfir góðum sumardegi og reynir að nýta hann í botn. Það vippar sér í sólbað, sund, garðinn, Ríkið, útikaffihús, kaupir grill, grillar og dansar í gegnum daginn með bros á vör.

3 Viltu tjá þig?

At 11 maí, 2006 08:29, Anonymous Nafnlaus said...

?etta var n'u samt stutt gaman skemmtilegt. Rigning 'i dag. En sumari[ ver[ur gott. Dj-...hva[ er a[ /essu letri}

 
At 14 maí, 2006 23:16, Anonymous Nafnlaus said...

Vegir internetsins eru órannsakanlegir!! Á vafri mínu um netið lenti ég á bloggsíðunni þinni :) Mér fannst það nú bara frekar notalegt....

Kveðja úr Grafarholtinu, Inga Ragnars

 
At 16 maí, 2006 00:47, Blogger Sigga said...

Notalegt að heyra frá þér. Kemurðu ekki bráðum í kaffi?

 

Skrifa ummæli

<< Home