Datt í lukkupottinn
Ég tók þátt í heilsuátaki Íþróttamiðstöðvarinnar og synti á hverjum morgni í heila viku 500 til 600 m. Í morgun kom Æskulýðs- og íþróttafulltrúinn í eigin persónu til mín og tilkynnti mér að nafn mitt hefði verið dregið út úr þeim fjölda sem tók þátt í átakinu (átakið náði aðeins til þeirra sem stunduðu sundið). Ester var líka dregin út og einn herramaður. Þau fengu bæði árskort í sund en ég fékk tíu þúsund króna gjafabréf frá Hafinu Bláa. Þrír krakkar unnu líka árskort í sund. Mér láðist að spyrja af hverju ég fékk ekki árskort í sund eins og hin. Kannski hefur Ragnar tekið eftir því að ég er búin að miss 250 g og ekki fundist ég mega við því. Því meira af mér því betra!
Einu sinni var ég á balli á Bifröst á Sauðárkróki og þar var ungur maður sem hélt á konu sinni sem var í afar góðum holdum, svo ekki sé meira sagt. Hann klappaði henni hátt og lágt og sagði: Ég elska hvert einasta gramm! Þetta er einhver fallegasta ástarjátning sem ég hef heyrt.
---
Fjórða markmiðið hennar Katherine sem hún náði á Íslandi var: Að synda í Blá lóninu.
Sigríður Guðnadóttir 
2 Viltu tjá þig?
Til hamingju Sigga mín. Alltaf gaman að vinna í happadrætti!
Flott hjá þér mamma mín, svo dugleg - svo dugleg !!!
Þú ert náttúrlega fyrirmyndin :)
Skrifa ummæli
<< Home