16.5.06

Þegar ég var norður á Akureyri um daginn heyrði ég að Þórunn vinkona mín væri að hætta sem skólastjóri í Lundarskóla. Ég heyrði að önnur vinkona mín hefði sótt um og það væri alveg öruggt að hún fengi stöðuna. Þar sem ég var að lesa um ljósastaura á mbl.is rakst ég á þessa frétt:

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir verður skólastjóri Lundarskóla á Akureyri.

Ég vissi ekki að þessi vinkona mín hefði sótt um stöðuna líka. Til hamingju Þórhildur Helga!

3 Viltu tjá þig?

At 16 maí, 2006 12:29, Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir elskan, hlakka til þegar þú kemur norður í kaffi ;)
Það er naumast allt morandi af vinkonum þínum í kringum Lundarskóla.....er þetta e-hver fyrirboði??

 
At 16 maí, 2006 12:30, Anonymous Nafnlaus said...

En fyrirgefðu....afhverju varstu að lesa um ljósastaura?? ertu sérleg áhugamanneskja um þá?

 
At 16 maí, 2006 12:47, Anonymous Nafnlaus said...

Ég var að lesa um oddvita Sjálfstæðisflokksins í Árborg...þú veist hann ók á ljósastaur. Reyndar hef ég haft áhuga á ljósastaurum alveg frá því að Gísli Sigurgeirsson var með frétt í Sjónvarpinu frá Dalvík um mikið fannfergi þar og stóð upp við ljósastaur og var jafnhár staurnum sem var nærri fenntur í kaf. Ég held að þetta hafi verið notað í Áramótarskaupinu.

 

Skrifa ummæli

<< Home