8.5.06

Ferðasögubrot

Ég er komin í Höfn-ina. Samtök tæknimanna sveitarfélaga héldu sína árlegu ráðstefnu og fundarhöld á Akureyri að þessu sinni. Ég þrýsti á að ég fengi að fara með og var það auðfengið. Annars eru ekki mikið um að makarnir, konur nær eingöngu, séu á þessum fundum.

Á fimmtudagsmorguninn hélt ég að ég væri að fara í skoðunarferð um bæinn, en sá þegar ég fékk ferðaáætlunina í hendur að klukkutíma ferðalagið var orðið að nærri fimm tíma ferð og alls ekki um Akureyrarbæ. Farastjórinn var kennari kominn á eftirlaun og ég hugsaði gott til glóðarinnar, þegar ég kæmist á eftirlaun, en það er langt í það! Bílstjórinn spurði mig hvort ég væri mamma Helgu Jónu og sagðist vera skólabróðir hennar. Þegar ég skoðaði drenginn nánar mundi ég eftir honum.
Við fórum sem sagt í Laufás, ókum Fnjóskadal í Vaglaskóg, þar sem skoðuð var falleg brú sem var byggð fyrir 98 árum, þá lengsta brú sinnar tegundar í Evrópu.
Við ókum síðan inn Eyjafjörðinn og skoðuðum Smámunasafn Sverris Hermannssonar að Sólgarði. Sverrir vann lengst við að gera upp gömul hús og safnaði m.a. hlutum og minjum úr húsunum sem hann gerði upp. Þetta er skemmtilegt safn og fjölbreytt og þar er að finna ólíklegustu hluti. Við skoðuðum kirkjuna að Saurbæ að utan, en þar sem hungrið var farið að segja verulega til sín fórum við hratt yfir sögu síðast sprettinn.
Við komum við á Grund og skoðuðum kirkjuna sem er stærsta kirkja í einkaeign á landinu. Eftir það gaf bílstjórinn hressilega í, þar sem vertarnir í Vín voru farnir að bíða með matinn.
Sveppasúpan var orðin hnausþykk og fiskurinn svolítið viðbrenndur en mikið smakkaðist þetta vel. Södd og glöð kíktum við inn í Jólahúsið. Þar ómaði jólatónlist og ilmur af hangiketi lagði að vitum okkar. Við fengum að bragða á hangiketinu, en einhvern veginn var mér fyrirmunað að komast í jólaskap. “Vores nordiske venner” voru mjög ánægðir með ferðina og ég líka.

Ég fór í heimsókn til Lúllýjar og Gísla í stað þess að fara í aðra skoðunarferð í hin og þessi fyrirtæki með öllum ráðstefnugestunum. Við áttum notalega stund saman. Þau eru alveg yndisleg. Gísli er jafngamall mömmu en Lúllý er aðeins yngri.

Um kvöldið snæddum við á KEA, þar sem ráðstefnan var haldin og ráðstefnugestir gistu. Maturinn var unaðslegur. Túnfiskur í forrétt, lambafille í aðalrétt og ísterutjukk með súkkulaðisósu í eftirrétt og kaffi. Ég gef matnum fimm stjörnur.

Föstudagur.
Ég hummaði af mér gönguferðina um bæinn með “vores nordiske venner” (fern pör). Í minn stað (reyndar var ég ekki ráðin til að vera selskabsdama) fór hinn fjallmyndarlegi maður, sem ég minntist á um daginn að hefði rokið á mig og kysst. Hann hafði gott af því að hreyfa sig og kynnast bænum örlítið.

Mig langaði frekar að þiggja boð Ásdísar vinkonu minnar, ritara Brekkuskóla, að koma og skoða skólann sem nýbúið er að byggja við. Það var mjög skemmtilegt að koma í skólann og viðbyggingin virtist hafa heppnast vel. Skemmtilegast fannst mér að hitta fólkið í skólanum og spjalla við það. Það sýndi sig að ég þekkti ótal marga sem starfa við skólann. Fyrsti maðurinn sem ég hitt var Birgir Helgason sem ég kenndi með í Barnaskóla Akureyrar (Íslands) og er fyrir löngu hættur að kenna. Hann var staddur þarna sem yfirmaður samræmdu prófanna, en þennan dag sátu nemendur með sveittan skallann yfir dönsku.

Næsti "hittingur" var á Amtsbókasafninu. Þar ætluðu elskulegu vinkonurnar mínar sem ég kenndi með í Hvammshlíðarskóla að hittast yfir ítölskum réttum á ítölskum dögum í viðbyggingu safnsins. (Ef ég byggi á Akureyri myndi ég hanga þarna; drekka kaffi, lesa blöðin og vafra á Netinu.) Það var frábært að hitta stelpurnar; þær eru eðaldömur og skemmtilegar. Þarna voru nemendur úr Fjölmennt á Akureyri að setja upp sýningu og þar á meðal var Vignir sem ég kenndi í Hvammshlíðarskóla. Ég gekk til hans og heilsaði honum. Og spurði svo:
- Þekkirðu mig?
- Já.- Hvað heiti ég?
- Sigga.
Þetta fannst mér ótrúlegt. Ég hef ekki séð hann í meira en áratug. Var ég svona hissa að því að hann er mongólíti?

Næsti áfangastaður var Rúv. Ég átti erindi við Möggu Blöndal. Ég var með mynd sem ég ætlaði að gefa henni. Myndin er af þremur ættliðum; af henni, dætrum hennar og mömmu sem Siggi tók fyrir mörgum árum í Húsdýrargarðinum, en þar hittum við þær af tilviljun. Ég er búin að ætla að gefa henni myndina í yfir 10 ár. Betra er seint en aldrei. Magga geislaði af lífshamingju og var skemmtileg að vanda.

Hátíðarkvöldverður Samtaka tæknimanna sveitarfélaga var á KEA um kvöldið. Maturinn var afbragðs góður. Við fengum sjávarfang í forrétt, fylltar svínalundir í aðalrétt og ís og ávexti í eftirrétt. Ungur söngvari söng fyrir okkur við undirleik Bryndísar Magnúsdóttur. Söngvarinn heitir Heimir Ingimarsson og er mjög efnilegur. Hann fékk frábærar móttökur. Fagnaðarlátunum ætluðu aldrei að linna. Það verður gaman að fylgjast með þessum söngvara.

Laugardagur.
Hitamælirinn á Ráðhústorgi sýndi 14°C fyrir hádegi. Við töltum um bæinn og hittum Svein Heiðar og Svan á Bautanum. Þar hittast þessi snillingar á laugardagsmorgun, ásamt fleirum, og tuða yfir kaffibolla yfir hinu og þessu . Það er óborganlegt að hlusta á þá.

Við keyptum blóm og vasa handa Helenu og færðum henni á nýju hárgreiðslustofuna, sem hún var að opna ásamt vinkonum sínum í dag. Það var fullt að gera hjá þeim stöllum. Hárkompan er björt og falleg stofa.

Við kíktum til Svans í nýja raðhúsið sem þau hjónin voru að kaupa í Víðilundinum. Við hittum ekki Erlu því hún fór á Kaldbak með vinnufélögum sínum. Hún hringdi af toppnum og lýsti stórfenglegu útsýni þaðan. Það sést varla í dökkan díl á Kaldbaki og það er komið fram í maí.

Steingerður kom um hádegisbil og var með okkur þar til við fórum í loftið klukkan að ganga sjö. Það var gaman að hitta þessa elsku. Vildi að hún og börnin væru ekki svona langt í burtu. Þetta var frábær ferð til Akureyrar.

1 Viltu tjá þig?

At 08 maí, 2006 22:57, Anonymous Nafnlaus said...

Gott þú varst ekki í hálfan mánuð á Akureyri. Maður hefði bara ekki haft tíma til að lesa það allt! Mikið hefur þetta verið gaman, og þær mæðgur Unnur Björk og Auður Magnea skreyta nú bara bæinn. Verst að Auður Björk skyldi ekki vera búin að opna snyrtistofuna, þá hefðir þú geta farið í ,,upplyftingu" (ekki að þú þurfir það samt elskuleg...alltaf jafn falleg!).

 

Skrifa ummæli

<< Home