22.5.06

Fánar og Páll Óskar

Það eru fáir sem hafa eins flott útsýni úr þvottahúsglugganum og ég. Ég sé alla fána framboðsflokkanna blakta við hún. Samfylkingin brá á leik í dag. Börn á hestbaki. Frambjóðendur á stólum upp við húsvegg og útigrill. Sá ekki hvað Framsókn og Sjálfstæðismenn höfðu fyrir stafni.

Ég dreif mig út í garð í morgun, spígsporaði og velti vöngum. Úr því ég var komin í föðurlandið, ullarsokka og stígvél nennti ég ekki að fara inn strax og fór að þrífa grillið að utan (til hvers?) og gluggana. Það er svo gaman að þvo gluggana með Enjo áhaldinu. Meðan ég æddi í kringum húsið með gluggakústinn að vopni var ég að velta fyrir mér hvaða flokk ég ætti að kjósa um næstu helgi.

Í gærkvöldi langaði mig ekki að taka þátt kosningunni í Evróvisíon keppninni. Ég hafði takmarkaðan áhuga, dottaði meira segja þegar norska lagið var sungið og það hafði ekkert með lagið að gera. Mamma spurði annað slagið: Ertu sofandi, Sigríður? Ég hafði ekki heyrt neitt lag áður, nema náttúrlega Til hamingju Ísland. Mamma hafði hlustað á þau öll og fylgst með forkeppninni og reyndi að fræða mig um flytjendur og lög eftir bestu getu. Hún var mjög spæld yfir að belgíska lagið skyldi ekki komast áfram í forkeppninni, sagði mér það tvisvar ef ekki þrisvar. Hún var ekki ánægð með úrslitin.

Ég hef ekki verið ýkja hrifin af laginu sem Silvía Nótt syngur og ekki skilið karakterinn. Páll Óskar tjáði sig svo skemmtilega í útvarpsþætti um Silvíu Nótt og framgöngu hennar í Aþenu að ég gat ekki annað en kinkað kolli til viðtækisins. Hann talaði líka um fræga fólkið, sem héldi að það væri frægt, en því miður væri engin innistæða fyrir hendi. Það væri svo upptekið af því að komast í Séð og Heyrt, væri sjálfumglatt og hrokafullt. Á þetta væri Silvía Nótt m.a. að deila. Hann sagði líka margt fleira sem kom mér í gott skap.

Hann hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér síðan hann kom hingað með Léttsveit Reykjavíkur 2001, þegar haldið var upp á 50 ár afmæli Þorlákshafnar. Hann heillaði áhorfendur með söng sínum og allri framkomu og söng mörg aukalög. Þar sem ég var í afmælisnefnd lagði ég til að Léttsveitin kæmi hingað og þurfti því að hafa samband við forsvarsmenn sveitarinnar. Ég var með kröfur um kynþokkafullan söngvara, en var bent á að Páll Óskar syngi oft með sveitinni og væri mjög góður. Hann væri líka svo hæverskur og blátt áfram; myndi ekki vera með eins háa launakröfu og kynþokkafulli söngvarinn. Allt stóð heima; hann var eins og sagt er í fallegu ljóði: lítillátur, ljúfur og kátur. Posted by Picasa

4 Viltu tjá þig?

At 22 maí, 2006 10:39, Anonymous Nafnlaus said...

já þetta eru skemmtilegar frásagnir hjá þár mamma mín :)

 
At 22 maí, 2006 15:39, Anonymous Nafnlaus said...

Pistill dagsins í dag góður hjá þér, nema hvað Framsóknarmenn gætu móðgast því þeir voru með fjölskyldugleði líkt og Samfylkingin. D-listinn hélt sig innan dyra í norðangarranum.
Fyndið með Pál Óskar, ég féll fyrir honum á sömu tónleikum og hef elskað hann síðan. Frábær söngvari með ómótstæðilega framkomu og svo skynsamur og skemmtilegur í öllum viðtölum.
Enn einu sinni erum við sammála...vona að við verðum það líka á laugardaginn ;-)

 
At 22 maí, 2006 19:25, Blogger Sigga said...

Ljósmyndin gefur ekki rétta mynd af því sjónarhorni sem ég hef úr geymslunni. Ég náði ekki að sjá fjörið hjá Framsóknarmönnum, bara fánana. Takk Sissa mín að leiðrétta þetta...allir með.

 
At 22 maí, 2006 21:15, Blogger Guðrún said...

Ég er búin að dýrka Palla síðan á balli í Réttinni (Úthlíð) um Verslunarmannahelgina 1994. Það er svo geggjað að horfa á hann á sviði.
Ég var ekkert að leiðrétta þetta með fánana fyir utan hjá þér, þú sást þá réttu....

 

Skrifa ummæli

<< Home