31.5.06

It feels like haven...


Ég var að koma af frábærum tónleikum sem Helgi Valur og Ragnheiður Gröndal héldu í Hveragerðiskirkju í kvöld. Þessir krakkar eru svo fínir tónlistarmenn að það er unun að hlusta á þau. Þau semja líka mörg falleg lög.

Helgi Valur opnaði tónleikana. Hann afsakaði útlit sitt; sagðist hafa verið veikur í allan dag og kannski leið rödd hans fyrir það. Mér fannst hann samt góður. Hann fékk okkur til að standa upp og syngja og klappa í viðlagi með sér. Hann hrósaði okkur og spurði kíminn: „Fannst ykkur þið ekki vera pínu kjánaleg?“ Við tókum líka undir í Hallelúja sem hann túlkar svo fallega.

Ragnheiður Gröndal byrjaði sína syrpu og endaði á lögum eftir Megas. Hún söng nokkur lög eftir sjálfa sig og eitt nýlegt lag sem hún samdi við texta Halldórs Laxness. Mjög fallegt lag. Hún kynnti leynigest sem var enginn annar en Magnús Þór Sigmundsson. Þau sungu saman lagið Ást. Eftir hlé komu krúttin Helgi Valur og Ragnheiður og sungu lög sem þau sömdu saman og lög eftir Helga Val. Öll falleg og áheyrileg. Allavega eitt þeirra var frumflutt í þarna í kirkjunni.

Að sjálfsögðu voru þau kölluð upp. Öll þrjú komu þau inn aftur og sögðust hafa ákveðið í hléinu að syngja Play me eftir Magnús Þór. Magnús Þór spilaði á gítar og Helgi Valur og Ragnheiður héldu á blaði á milli sín og sungu til skiptis ein eða saman. Þetta var óæft en eitthvað svo músíkalst og skemmtilegt hjá þeim. Lagið er líka svo fallegt!

Þetta voru fallegir og skemmtilegir tónleikar með frábæru tónlistarfólki sem er rétt að byrja að springa út...nema náttúrlega Magnús Þór sem er útsprunginn og fínn. Posted by Picasa

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home