Kosningadagurinn

Ég er búin að kjósa. Fyrir nokkru gerði ég upp við mig hvað ég ætlaði að kjósa, samt fékk ég kvíðakast þegar ég nálgaðist kjörklefann.
Við kusum eftir að við vorum búin að vera í hádegismat hjá Nönnu og Gylfa í Reykjavík. Við fengum frábæran indverskan mat, grillspjót með kjöti, kjúklingi og grænmeti, heimabakað nanbrauð og annað meðlæti. Súkkulaðihjúpuð jarðarber og kaffi í eftirrétt.
Það er alltaf svo gaman að heimsækja þau hjón. Nanna er með skemmtilegan danskan húmor, enda er hún hálfdönsk. Ég er síflissandi í návist hennar. Hinrik sonur þeirra útskrifaðist sem stúdent frá Kvennaskólanum í gær ásamt kærustu sinni. Þau fengu bæði verðlaun fyrir áhugamál sín. Hann fékk verðlaun í tölvu og hún í hannyrðum. Öll kvöld sitja þau saman við eftirlætis iðju sína.
Mér fannst vera vor í Reykjavík; sólin skein, veðrið var milt og ilmur í lofti. Ég sit og horfi út um gluggann og það rignir. Ég vona að þetta sé ekki fyrirboði þess að næsta kjörtímabil verði grátt og dapurlegt. Nei, fussum svei, þetta veitir á gott. Rigningin er kærkomin eftir langan þurrka kafla. Gróðurinn þurfti á henni að halda.
Sigríður Guðnadóttir 
4 Viltu tjá þig?
því miður var rigningin ekki fyrir gróðurinn heldur grétu veðurguðir yfir því Hitlersríki sem mun ríkja hér næstu 4 árin.
Hef ekki skammast mín svona fyrir að búa í þessu þorpi áður!

afsakið veit ekki hvers vegna færslan kom svona oft... sennilega er tölvuheimur sammála mér
Skrifa ummæli
<< Home