19.5.06

Leti

Broddi Jóhannesson fyrrum skólastjóri Kennaraskóla Íslands sagði einhvern tímann að það væri nauðsynlegt að vera latur. Undanfarið hef ég rekist á þessa fullyrðingu oftar en einu sinni.

Í fyrradag græddi ég sjöþúsund krónur á leti minni.

Ég kom dauðþreytt heim úr vinnunni og hlammaði mér niður við eldhúsborðið og nennti ekki að hreyfa mig. Nennti ekki að fara úr skónum, nennti ekki að standa upp og fá mér nýlagað kaffi, nennti ekki að athuga af hverju ég gæti ekki hringt úr gemsanum mínum. Eiginmaðurinn klæddi mig úr skónum, náði í kaffi handa mér og fann gemsann; hann dró þá ályktun að hann væri lokaður. Hann vildi að ég gerði eitthvað í málunum. Ég nennti því ekki og sagði.
-Á morgun...
Hann kom með bunka af greiddum reikningunum (sem ég hef ekki nennt að setja inn í möppu) og setti fyrir framan mig svo ég gæti athugað hvort ég ætti einhvern reikning ógreiddan. Ég sagði ákveðin:
- Ég athuga þetta á morgun. Ég hef örugglega gleymt að borga síðasta reikning...
Ég braut heilann um hvort þetta væri stjórnsemi eða umhyggja hjá mínum elskulega.
Hann fann símanúmer sem ég gæti hringt í og athugað af hverju búið væri að loka gemsanum. Ég flokkaði þetta undir stjórnsemi og sagði enn einu sinni:
- Ég nenni því ekki.
Hann hringdi og talaði við Símann og fékk þá vitneskju að frú Sigríður hefði gleymt að greiða febrúarreikninginn. Minn maður spurði hvort hann gæti ekki greitt hann strax svo síminn yrði opnaður. Það virtist vera í lagi því hann náði í nýja platínukortið sitt og gaf um gildistímann. Eitthvað þótti honum upphæðin há því hann hnyklaði brýnnar og hváði... sjöþúsund. Ég sagði:
- Ég geng frá þessu á morgun, láttu þetta eiga sig.
Ég heyrði að hann þakkaði dömunni.
Ég teygði mig í gemsan hringdi í minn elskulega eiginmann og þakkaði honum fyrir.

Ást er...að borga símreikninginn fyrir elskuna sína.


1 Viltu tjá þig?

At 19 maí, 2006 13:20, Blogger Guðrún said...

Þetta var skemmtileg saga og ég er alveg sammála dr.Brodda. Mér finnst ógeðslega gott að vera löt og ég hef ekkert samviskubit yfir því!!

 

Skrifa ummæli

<< Home