2.5.06

Löng helgi

Ég fór í klippingu til Gunnellu (Hárxpó) á föstudaginn í síðasta skipti a.m.k. að sinni. Daman er að flytja norður á Húsavík. Ég er búin að vera hjá henni síðan hún flutti suður fyrir átta árum. Ég hef verið afskaplega ánægð með hana og svo er hún svo skemmtileg. Við flissuðum, sungum og létum stundum vitleysislega þegar ég sat í stólnum hjá henni. Það fór líka drjúgur tími í þessar ferðir hjá mér, en ég gerði bara ráð fyrir því og naut þeirra. Ég kem til með að sakna hennar sem klippara og vinkonu. Ég skrepp til hennar þegar ég fer í heimsókn til Húsavíkur.
---
Nýklippt og strokin mætti ég í æfingabúðirnar hjá skólakórnum. Þrátt fyrir annríki sl. viku þá hlakkaði ég til að vera með þessum frábærum stelpum og gista með þeim í skólanum, ásamt Ester kórstjóra og vinkonu. Þessar jákvæðu og skemmtilegu stelpurnar eru úr 5. og 6. bekk en eldri stelpurnar fengu frí.

Við vorum með tvær æfingar á föstudeginum og fórum í sund á milli. Borðuðum pítsu og horfðum á Sound of Music með Julie Andrews and Christopher Plummer í aðalhlutverkum. Við Ester lifðum okkur inn í myndina en stelpurnar misstu stundum þráðinn. Tónlistin höfðaði til þeirra. Við æfðum lagið Alparós úr myndinni sem þeim finnast svoooo fallegt. Eftir morgunmatinn tókum við eina æfingasyrpu og enduðum á sundferð. Sumar stelpurnar áttu annríkt og komust ekki með. Þetta var hin besta skemmtun.
---
Við mæðgur, ég og örverpið, fórum á yndislega tónleika á laugardagkvöldið í Laugardagshöllinni. Við sátum á mjög góðum stað. Fyrir tilviljun settust við hliðina á okkur tveir Þorlákshafnarbúar. Okkur fannst þetta algjör brandari. Laugardalshöllin sneisafull og við lendum hlið við hlið.

Tónleikarnir voru mjög skemmtilegir. Garðar Thór, kynþokkafyllsti karlmaður Íslands, söng mjög vel og heillaði áheyrendur upp úr skónum.Vinkona hans Katherine Jenkins söng líka vel með sinni fallegu mezzórödd. Áhorfendur létu hrifningu sína í ljós með hrópum og stappi. Þvílík stemmning! Allt ætlaði vitlaut að verða þegar Garðar söng Granada og þandi tenórraddböndin til hins ýtrasta. Flottur strákurinn . Örverpinu fannst óþægilegt að horfa á tenórinn í nærmynd því hann geiflar sig svo þegar hann syngur.

Katherine Jenkins kom þrisvar fram og klæddist nýjum kjól í hvert skipti sem gladdi dóttur mína mjög. Megnið af félögum úr sinfóníunni spiluðu ásamt rythmasveit sem Garðar Cortes stjórnaði. Óskar Einarsson útsetti öll lögin sem Garðar söng og gerði það mjög vel. Ég man eftir þessari elsku þegar hann var að byrja að troða upp á skemmtunum á Akureyri fyrir mörgum árum. Nú er hann farinn að stjórna bæði hljómsveit og kór. Okkur fannst svo krúttlegt þegar Garðar Thór þakkaði pabba sínum í lokin og þeir féllust í faðma. Þetta var afar skemmtilegt kvöld.
----
Sunnudagurinn var líka skemmtilegur því Helga Jóna, Óskar og mamma komu seinnipartinn og borðuð fjallalamb með kryddi frá Pottagöldrum án salts. Dýrasta lærið sem ég fann í Bónus og ljúffengt eftir því. Við sátum við eldhúsborðið til hálf tvö um nóttina, spjölluðum, kölluðum, sögðum sögur með leikrænum tilburðum, og hlógum í öllum tóntegundum. Skáluðum í koníaki og vatni til skiptis. Frábært kvöld.

Áður en þau fóru heim í gær eldaði ég fiskisúpu með þeim fiskitegundum sem ég fann í kistunni; ýsu, rækjum og humri. Þegar ég var að róta í frystinum fann ég mál með hvítum vökva sem ég taldi vera hvítvín og hrósaði mér í hástert fyrir að vera svona sniðug að hafa fryst hvítvínsafganginn. Ég afþýddi vökvann og skellti honum út í súpuna. Það kom svo í ljós, þegar súpan ysti, að þetta var ekki hvítvín heldur eggjahvítur. Enda fann ég enga lykt af vökvanum og mjög ósennilegt að einhvern tímann hefði orðið afgangur af víni hjá mér. Súpan, þrátt fyrir allt, smakkaðist vel.

Ég fór ekki í neina baráttugöngu 1. maí, en ég fór í Íþróttahúsið kl. 10:00 í tíma hjá einkaþjálfaranum mínum! Mér finnst ég rosaleg gella að vera með einkaþjálfara. En ég verð að endurskoða outfittið. Það er hallærislegt að vera í fimmtán ár gömlum leggings, sem eru þar að auki glansandi.

1 Viltu tjá þig?

At 02 maí, 2006 23:20, Anonymous Nafnlaus said...

Engin lúða lengur í kistunni :-(

 

Skrifa ummæli

<< Home