Og ég doka...

Nú er ég búin að bíða í klukkutíma eftir nemönd, sem ég bauð að koma í aukatíma til mín...en nemandinn lætur ekki sjá sig. Í gær bauð ég fleirum úr sama hópi að koma í aukatíma; það var einn nemandi sem nýtti sér það. Ég er með samviskubit yfir því að tímarnir þeirra lentu svo oft á rauðum dögum; mig langaði að bæta þeim það upp svo þeir gætu lokið við heimasíðuna sína. Eftir á að hyggja get ég voða lítið gert að því þó að lögboðnir frídagar lendi á þeim dögum sem nemendurnir eiga að vera í tölvu. Burt með allt samviskubit. Ég þarf ekki að taka það fram að um sjálfboðavinnu er að ræða.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home