17.5.06

Pólitík

Ég var að koma af framboðsfundi í Versölum; var búin að bíða spennt eftir honum lengi. Þetta var hinn ágætasti fundur og allir framsögumenn stóðu sig vel. Fundastjórinn var sérlega flottur. Ég veit ekki hvað það á að þýða að vera skamma þessa elsku fyrir formlegheitin; hann er bara skipulagður. Það var nú bara einn sem er ekki enn búinn að fyrirgefa honum síðan fyrir átta árum, en þá þaggaði minn elskulegi niður í honum; hann hélt nefnilega framboðsræðu úr sal, í stað fyrirspurnar. Hvað um það; þetta er samt flottur og góður kall.

Framsókn er eini flokkurinn sem hefur það á stefnuskrá sinni að ráða aðstoðarmann á skrifstofu byggingafulltrúa. Hann fær nú marga plúsa fyrir það, enda löngu tímabært. Það vill til að byggingafulltrúinn er duglegur maður; en ég vona svo sannarlega að hann drepi sig ekki á gífurlegu vinnuálagi.

Hvert stefnir þessi bloggfærsla? Hún átti alls ekki að snúast um byggingafulltrúann.

Mér fannst Hróðmar í Samfylkingunni og óháðum tala skynsamlega um umhverfismálin. Sjálfstæðismenn ætla að laga gangstéttarnar og fegra bæinn. Gangstéttin á Reykjabrautinni er ömurlega ljót. Reyndar ætla þeir að byrja á Selvogbrautinni...

Allir flokkarnir vilja hlúa að skólanum, en mér finnst sumir vera tjá sig faglega án þess að hafa forsendur til þess...og setja í stefnuskrá sína einhvers konar námskrá...jamm ...nú er ég kannski komin út á hálan ís.

Á fundinum voru kynnt tvö bæjarstjórnarefni; Ólafur Áki Ragnarsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Elín Björg Jónsdóttir fyrir Samfylkinguna og óháða. Framsóknarflokkurinn sögðust ekki vera í neinum vandræðum með að finna sveitarstjóra; það væri nóg af þeim um allt land.

---

Í dag er þjóðhátíðardagur Norðmanna. Og þetta er fæðingadagur Ingigerðar Þorsteinsdóttur, móðursystur minnar. Blessuð sé minning hennar. Svo kyssti ég einn úr 6. bekk í morgun sem á afmæli í dag!

4 Viltu tjá þig?

At 18 maí, 2006 09:59, Anonymous Nafnlaus said...

ég held ég kjósi manninn sem sinnir öllum þeim hlutverkum sem hann tekur sér fyrir hendur afbragðs vel ;) hvort sem það er fundarstjóri, byggingafulltrúi, faðir, og svo lengi mætti telja.....(ég má nú dást að aðal manninum :) )
x Siggi Nonni í Nesi

 
At 18 maí, 2006 10:31, Anonymous Nafnlaus said...

Gasalega líst mér vel á Elínu Björgu sem bæjarstýru

 
At 18 maí, 2006 16:36, Anonymous Nafnlaus said...

X - S

 
At 18 maí, 2006 22:12, Blogger Kaffikella said...

já þetta var bara nokkuð góður fundur. Sammála því að Hróðmar talaði af skynsemi, nokkuð sem fleiri mættu temja sér ;=)

 

Skrifa ummæli

<< Home