Úrslit
Sigurvegari kosninganna hér í Sveitarfélaginu Ölfusi er Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta, fjóra menn kjörna, en þeir háðu mjög öfluga kosningabaráttu. Mér hugnast ekki hreinn meirihluti í bæjarstjórn í svona litlu bæjarfélagi, alveg sama hvaða flokkur á í hlut.
Ég fæ alltaf hálfgert kvíðakast þegar ég nálgast kjörklefann á kosningardaginn. Þó ég kjósi eftir minni bestu sannfæringu, þá veit ég ekki hver niðurstaðan verður eftir kosningar, hverjir fara í samstarf og mynda meirihluta, eða hvaða afl verður í meirihluta o. s. frv. Ég hef ekkert um málið að segja fyrr en að fjórum árum liðnum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta. Það er hægt að gera sér í hugarlund hvaða áhrif það mun hafa á bæjarfélagið næstu fjögur ár. Fyrir kosningar vildu flokkarnir ræða við okkur kjósendur, útskýra málefni, skiptast á skoðunum og heyra álit okkar. Munu þeir, nú eftir kosningar, standa við gefin loforð eins og t.d. þetta?: “Við mótun og uppbyggingu sveitarfélagsins munu frambjóðendur D-listans kalla íbúana til þátttöku í mótun stefnu um framtíð Ölfuss. D-listinn mun tileinka sér íbúalýðræði þannig mótun við "Öflugt Ölfus." “
Á stefnuskrá flokkanna þriggja (held ég) var hið svokallaða íbúalýðræði, sem lætur vel í eyrum. Það ætti að vera sjálfsagt mál að íbúar sveitarfélagsins fengju að tjá sig um mikilvæg málefni sem eru til umfjöllunar í bæjarstjórn. Mál sem eru yfirgripsmikil og skiptir sköpun fyrir íbúana ætti að kynna og útskýra, hvað það er sem liggur til grundvallar. Gefa íbúum tækifæri til að láta skoðanir sínar í ljós og greiða atkvæði um málið. Þarna er hægt að nýta sér tæknina og kjósa rafrænt á Sunnan 3.
Stjórnmálamenn eiga að vinna að heilum hug fyrir íbúa sína og stuðla að betra samfélagi með lýðræðislegum vinnubrögðum, því nærri helmingur kjósenda, 49,56%, er í minnihluta. Meirihlutinn fékk 48,10% af greiddum atkvæðum.
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home