20.5.06

Vorferð í Tungurnar

Þó ég hafi ekki stundað vatnsleikfimi í Hveragerði hjá henni Ester vinkonu minni, nema í nokkur skipti fyrir áramót, var mér boðið í vorferð með hópnum í gær.

Ferðinni var heitið í Biskupstungurnar í rútu. Þar var komið við í tveimur sumarbúðstöðum, hjólhýsi og á sveitabæ. Nokkrir bústaðir voru skoðaðir úr fjarlægð sbr. minn. Fimm konur af ellefu áttu athvarf í Tungunum og þar af ein með lögheimili þar. Sjötta tengdist Tungunum á þann hátt að hún sat oft hjá föður sínum í mjólkurbílnum, þegar hún var lítil, og þekkti því alla bæi með nafni... og ábúendur. Og það er ekki að spyrja að því að þessar konur eru allar upp til hópa klárar og skemmtilegar.

Það var boðið upp á veitingar á öllum þeim stöðum sem áð var á. Það var aðeins brugðið út af ferðaáætluninni og stoppað hjá Kerinu. Þar dró frú Ester upp pizzusnúða a la Mási og áfengan mjöð. Næsti áfangastaður var í sumarbústað í landi Spóastaða. Steinunn, sem er ættuð þaðan, á þar lítinn og notanlega sumarbústað. Hún bauð upp á veitingar í gróðurhúsinu sínu sem er mjög stórt og með hvolfþaki úr plasti. Það var notalegt að sitja þarna inni og hlusta á rigninguna sem buldi á plastinu, en reyndist þó vera smá úði. Í gróðurhúsinu var fjöldi plantna; frúin hefur greinilega grænar fingur. Við gengum upp á hæð fyrir ofan sumarbústaðinn og dáðumst á ægifögru útsýninu sem við blasti.

Þá var ekið um eystri Tungurnar sem leið liggur að Hrísbergi í landi Drumoddstaða. Þar á Sigurveig, frænka Esterar sem er ættuð frá Núpum, sumarbústað. Þetta er nýlegur sumarbústaður og útsýnið dásamlegt. Úr öllum gluggum sáust Jarlhetturnar og fleiri falleg fjöll. Bústaðurinn minn er hinum megin við Tungufljótið á móti Sigurveigar. Við gætum kallast á, allavega með ljósmerkjum.

Við komum við í Múla, áður en haldið var að Gýjarhólskoti, þar sem beið okkar súpa. Anna Sigga er með hjólhýsi á landsspildu sem hún á þar. Hún er búin að gróðursetja ótrúlega mikið í sínu landi. Þar var gróðursett stilkagreni sem Frú Ester gaf henni. Ester var búin að útbýta einnota hönskum til allra kvennanna áður en gróðursetningin fór fram. Í hjólhýsinu skáluðum við í appelsínulíkkjör. Vatnsleikfimidrottningarnar afhentu Önnu Siggu gjafabréf í eldgosameðferð í Laugum í tilefni af sjötugs afmæli hennar.

Þegar við renndum í hlað að Gýjarhólskoti tók Adda systir Guðrúnar, sem er bóndi þar, á móti okkur og sagði okkur að flýta okkur inn því það væri komið að Silvíu Nótt. Við þutum inn og fengum tækifæri til að fylgjast með okkar framlagi í Evrovision. Súpan var frábær sem borin var á borð. Eftir átið skoðuðum við garðræktina hjá Guðrúnu og nýtt og mjög tæknivætt fjós. Síðan var okkur boðið í Kotið til að skoða forlátan útskurð sem Ragnhildur Magnúsdóttir, kona Jóns Karlssonar bónda, sker út úr margs konar viðartegundum. Ég var svo skotin í gömlum hjónum að ég ákvað fjárfesta í þeim. (Þau kostuð það sama og símreikningurinn sem hann Sigurður minn greiddi í fyrradag.) Ég er viss um að bóndinn hefur setið fyrir hjá listakonunni því að trékallinn er glettilega líkur honum. Einhver spurði hver hefði gert listaverkið sem sást út um gluggann á herberginu. Þá heyrði ég nafn Guðna Þorfinnssonar nefnt, sem hljómaði einkar kunnuglega í mín eyru. Ég fór nú að athuga málið. Þá reyndist þetta vera listaverk eftir son Guðna, hann Þorfinn bróður minn; andlit meitlað úr steini.

Eftir kaffi og konfekt sigldum við af stað heim eftir rúma sjö tíma törn. Þetta var skemmtileg ferð með skemmtilegum konum um fallega sveit.

Í rútunni var ég að hugsa hvað heimurinn væri lítill, reyndar ekki ný sannindi. En þarna í rútunni voru margar tengingar á milli kvennanna, þegar farið var að tala saman. Svo fannst mér skondið að rifja það upp að hjónin í Gýjarhólskoti eru náskyld tveimur frábærum konum sem vinna með mér. Jón er móðurbróðir Sissu og kona hans, Ragnhildur, er móðursystir Helgu Helgadóttur. Posted by Picasa

2 Viltu tjá þig?

At 20 maí, 2006 15:24, Anonymous Nafnlaus said...

Já, hún er ekki stór þessi Tungnaveröld...gaman að pæla í svona tengingum vítt og breitt.
Frábært það sem hún Ranka er að gera...þarf að sjá hjá þér hjónin

 
At 21 maí, 2006 03:09, Blogger Guðrún said...

Sigga mín, þú ert frábær sögumaður, haltu þessu endilega áfram !

 

Skrifa ummæli

<< Home