17. júní
Ég hef alveg gleymt að minnast á, að mín elskulega dótturdóttir er búin að vera hjá mér í tæpa viku, mér til yndis og ánægju. Hún spurði mig í gærkveldi hvað væri svona merkilegt við 17. júní!Við morgunverðarborðið í morgun var henni hlýtt yfir þann fróðleik sem hún fékk hjá ömmu sinni í gær, um aðdragandann að stofnun lýðveldisins og af hverju þessi dagur varð fyrir valinu sem þjóðhátíðardagur Íslendinga. Sú stutta byrjaði: „Sko, Danir réðu yfir okkur, ha, og svo voru nokkrir kallar, eða kall sem hét Jón......
Í fyrra öðlaðist þessi dagur sérstaka merkingu fyrir mig. Það urðu kaflaskil. Mjög góð. Nokkrum dögum áður var ég bænheyrð í kirkju í þessum bæ á Ítalíu og í kjölfarið gerðist kraftaverkið.
Sigríður Guðnadóttir 
3 Viltu tjá þig?
Djö....er ég forvitin :-)
Kraftaverk?????
Nú bíð ég eftir öðru kraftaverki!
Þú getur ekki skilið mann eftir að drepast úr forvitni. Komdu í kaffi til mín!!
Skrifa ummæli
<< Home