18.6.06

Fjallkonan...


...fer hún þá upp á fjall? Heyrði ég sex ára snáða spyrja pabba sinn þegar fjallkonan, sem var að þessu sinni Barbara Guðnadóttir, var að koma sér fyrir við ræðupúltið. Heyrði ekki hverju pabbinn svaraði, því fjallkonan hafði þegar byrjað flutning sinn á ljóði eftir Andra Snæ Magnason.

Ísland

Ó! Ísland þú ert þvílíkt flott
með þúfur og jökla og geggjaða fossa
þó veðrið sé reyndar grátlega gott
með gjafmilda himna og rennblauta kossa
þá ertu Ísland indælt sker
ýktasti staður á jörðu er hér.

Já! Land mitt þú ert ágætis eyja
æðisleg finnst mér hérna að lifa
og að lokum sjálfsagt dýrðlegt að deyja
einn daginn er lífsklukkan hættir að tifa
þá hvíli ég í þinni mergjuðu mold
móðir mín góða, Ísafold.

Birt í Morgunblaðinu á þjóðhátíðardaginn 2006, opnuauglýsing frá Landsbankanum.
"Á hverjum hátíðardegi býður Landsbankinn listmanni að deila með okkur hugrenningum sínum. "

0 Viltu tjá þig?

Skrifa ummæli

<< Home