21.6.06

Á leið til Færeyja með viðkomu á Húsavík

Ég er komin til Húsavíkur og rigningin eltir mig, reyndar er stytt upp núna. Að vísu var fínt veður í gær þegar ég, mamma og Ragnhildur lentum á Akureyri. Steingerður og Sigurjón komu og sóttu okkur.

Við þurftum aðeins að snúast á Akureyri. Ég byrjaði á því að fara með gleraugun mín í viðgerð því annar púðinn var brotinn. Gæti trúðað að það hafi gerst þegar ég ákvað að geyma þau í skónum mínum, þar sem ég taldi það öruggasta staðinn á meðan ég skryppi í smádekur. Skammtímaminnið er ekki upp á marga fiska hjá frú Sigríði og hafði hún steingleymt fína geymslustaðnum þegar hún smeygði sínum netta fæti í skó númer 41, og þá mundi hún það. En, aftur í gleraugnabúðina. Ég valdi púða sem líktust þeim sem fyrir voru á gleraugunum en auðvitað var ekki hægt að fá eins. Karl, optiker, lagaði gleraugun og pússaði (illa) á meðan hann spurði mig hvort ég byggi ekki í Keflavík. Hann hafði verið í Keflavík um síðustu hlegi að gifta son sinn og hann hafði aldrei lent í annarri eins rigningu. En mig minnti að í Höfninni hafi verið blíðskapar veður þann sautjánda? Ég þreifaði eftir peningaveskinu í töskunni. Nei, ekki mátti ég borga viðvikið, það var í boði Karls! Akureyringar eru greiðviknir.

Við mæðgur, þrír ættliðir, leggjum upp í ferð til Færeyja með Norrænu á morgun. Við leggjum af stað í rútu, frá Skrifstofu verkalýðsfélaganna á Húsavík, klukkan hálf sjö í fyrramálið. Í ferðinni verða þrjátíu og níu manns. Ég er farin að hlakka til.

3 Viltu tjá þig?

At 21 júní, 2006 21:11, Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð mín kæra!

 
At 21 júní, 2006 23:01, Blogger Guðrún said...

Góða ferð Sigga mín. Vonandi finnurðu Netkaffi í Færeyjum svo hægt verði að fá ferðasöguna um leið og hún gerist.

 
At 22 júní, 2006 10:48, Anonymous Nafnlaus said...

Góða skemmtun!!

 

Skrifa ummæli

<< Home