13.6.06

Óvissuferð um Reykjanesskaga

Laugardaginn 10. júní sl. fór Ferðamálafélag Ölfuss í óvissuferð um Reykjanesskaga. Í ferðinni voru níu konur ásamt fararstjóranum Jóhanni Davíðssyni. Þrátt fyrir þoku og súld heppnaðist ferðin vel í alla staði. Stemmningin var góð hjá ferðalöngum og átti farastjórinn drjúgan þátt í að skapa hana. Hann kom okkur skemmtilega á óvart með ýmsum uppátækjum á leiðinni. Jóhann er mikill áhugamaður um hella og fórum við niður í tvo hella og í nokkra hellisskúta.

Sumar okkar áttu oft erfitt með að átta sig á hvar við vorum staddar vegna þokunnar. En vegvísar sýndu að við ókum fram hjá Vigdísarvöllum, Kleifarvatni og Djúpavatni.Við gengum í hrauninu sem var að mestu þakið fallegum grænum mosa og kallað er Almenningur. Þar fórum við í Hrútagjá og Hrútagjárdyngju sem er með myndarlegum hrauntröðum og fallega löguð. Við skoðuðum Húshelli sem er nálægt Fjallinu eina og í er hleðsla sem minnir á lítið hús eða herbergi.

Á leiðinni heim var farið í Sængurkonuhelli í Herdísarvíkurhrauni í Selvogi. Þar á kona hafa alið barn er hún var á leið milli bæja. Við kíktum inn í hellismunnann og sáum þar ryðgað vaskafat. (Skyldi hún hafa gleymt því?) Við vorum orðnar lúnar og nenntum ekki að fara að klöngrast inn í hellinn; en forvitnin varð letinni yfirsterkari, þegar farastjórinn gaf það í skyn að við misstum af miklu ef við færum ekki inn í hellinn. Það má til sanns vegar færa; við hefðum misst af „líkfundinum”.

Ógleymanleg ferð um hrjóstruga og tignarlega náttúru Reykjanesskaga með skemmtilegum konum og einum karli sem stjórnaði okkur með ljúfmennsku sinni og skemmtilegheitum.

4 Viltu tjá þig?

At 13 júní, 2006 10:31, Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig varst þú hnjám og öðrum liðum eftir þetta Sigga mín?
Þetta hefur verið gaman...

 
At 13 júní, 2006 11:02, Blogger Sigga said...

Það skemmtilegasta við þetta allt saman var að ég var bara býsna góð. Ég hef ekki getað farið í göngu í ár ... en tilfinningin var þannig á göngunni að það væru vöðvar sem bæru mig uppi. Og það get ég þakkað henni Elínu minni Ósk einkaþjálfara að vöðvarnir hafa styrkst, kvalirnar minnkað og nætursvefninn bara góður!! En Sissa krútt, ég hef ekki grennst um eitt helv...gramm! Hvað finnst þér um það? Elín heldur jafnvel að skammtarnir hjá mér séu helst til stórir!

 
At 13 júní, 2006 14:16, Anonymous Nafnlaus said...

Hmmm....merkileg speki þetta með skammtana. Ætli hún segði ekki það sama við mig sem fæ mér ævinlega þrisvar á diskinn og svo súkkulaði á eftir! Best ég blandi Elínu Ósk bara ekkert í málið ;-)

 
At 08 desember, 2012 10:50, Anonymous Nafnlaus said...

Loosen [url=http://www.COOLINVOICES.COM]free invoice creator[/url] software, inventory software and billing software to design gifted invoices in before you can say 'jack robinson' while tracking your customers.

 

Skrifa ummæli

<< Home