28.8.06

Fósturdóttirin Gab er komin...

...frá Tælandi. Við sóttum hana í Kaldársel á sunndaginn, en þar var hún búin að vera á námskeiði í tvo daga ásamt 42 öðrum skiptinemum alls staðar úr heiminum.

Það var verið að taka mynd af öllum hópnum þegar við komum. Við hjónin þekktum strax okkar stúlku, hún var í fremstu röð með rauðan trefil. Hún kom hlaupandi til okkar þegar hún kom auga á okkur og “systur” sínar. Við féllumst í faðma.

3 Viltu tjá þig?

At 29 ágúst, 2006 20:32, Blogger Guðrún said...

Það verður ekki slæmt hjá henni að vera hjá svona alltumvefjandi fólki eins og ykkur. Megi lukkan leika við ykkur öll!!!

 
At 01 september, 2006 16:55, Anonymous Nafnlaus said...

Heppin stúlka! Ef ég get eitthvað gert ....

 
At 01 september, 2006 16:56, Anonymous Nafnlaus said...

Gleymdi einu: Ég er fegin að þú ert komin heim frá Færeyjum Sigga mín. Þó ferðasagan hafi verið skemmtileg má nú fá leið á henni ef maður les ekkert annað vikum saman!

 

Skrifa ummæli

<< Home