31.8.06

„Mér leiðist....

...en ég get ekki gert neitt við því”, sagði dóttirin frá Bangkok í kvöld. Skynsöm stúlka. Hún situr hjá mér meðan ég bý til matinn og við spjöllum. Hún spyr mig hvort ég hafi séð kvikmyndina Nóa Albinóa. (Hún horfði á hana tveimur dögum áður en hún yfirgaf borg englanna). „Svo leiðinleg mynd. Einmanaleiki og snjór.”
„Þetta er list”, segi ég. (Held reyndar að ég hafi gefist upp á að horfa á hana).

„Það er enginn sem talar við mig í skólanum. Ég reyni að tala við krakkana á ensku en þeir hlaupa í burtu. Þeir tala ekki ensku.”
„ Ójú, þeir kunna ensku, þeir eru bara feimnir.” En, ég veit betur enda kaupir hún ekki þessa skýringu.
„Ég var að tala við vin mig áðan og þetta er eins í Kópavogur.”
(Þessir Íslendingar.)
„Hvað gerir þú þegar þú ert búin í skólanum heima í Tælandi? Ertu með vinkonum þínum? ”
„Stundum. Við förum t.d. í Kringluna (moll), fáum okkur ís...
„Hvernig farið þið í Kringluna? Við tökum stundum taxa, pínulítinn taxa (teiknar hann með mjög lítilli hreyfingu, út í loftið) og troðum okkur kannski tíu í einn taxa. It´s so funny. Annars er Kringlan rétt hjá skólanum.”

Við horfðum svo á Everybody loves Raymond. Hún skellihló... og ég líka (hef aldrei horft á þennan þátt.)

Vinkona óskast.

3 Viltu tjá þig?

At 04 september, 2006 19:07, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með dótturina!!

 
At 04 september, 2006 19:07, Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með dótturina!!

 
At 04 september, 2006 21:51, Blogger Sigga said...

Takk fyrir Helga mín. Vonandi gengur allt eins og í sögu hjá þér á Akureyri. Ég keyrði fram hjá húsinu í sumar en þið voruð sennilega ekki flutt.

 

Skrifa ummæli

<< Home