5.9.06

Byrjaði á myndbandsnámskeiði...

... í dag í KHÍ. Fyrsta skiptið af fimm, en námskeiðið eru 15 kennslustundir. Eins og þetta er spennandi og skemmtilegt finnst mér ekki eins spennandi að þurfa vinna tímana sem ég átti að kenna í dag af mér á morgun. Það er reyndar ekki við neinn annan að sakast en mig sjálfa. Ég benti skólastjórnendum á þessa frábæru lausn!!

Ítalíufarinn kom með mér í bæinn til að fara í búðir með ömmu sinni sem keypti á hana vélprjónaða lopapeysu. Það er af sem áður var þegar amman sat í jógastellingu fyrir framan Grundig sjónvarpið og prjónaði í gríð og erg lopapeysur og seldi!

Fósturdóttir mín er orðin veik. Hún svaf þegar ég kom heim úr bænum og bað bara um að fá að sofa lengur þegar ég vakti hana í matinn í kvöld. Hún var greinilega með hita. Þessi íslenska veðrátta! Í dag heyrði ég mann segja að það væri bara vont veður á Íslandi.

Nú þarf ég að bretta upp ermarnar og hjálpa örverpinu mínu, litlu prinsessunni að pakka. Mér finnst ég þurfa að hafa hönd í bagga...

2 Viltu tjá þig?

At 08 september, 2006 08:47, Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Sigga mín.
Ástarþakkir fyrir ánægjulegan dag hjá þér í sumar. Ég vona að við hittumst fljótt aftur.
Ég var að lesa bloggið þitt (mér finnst alltaf eins og ég sé að hnýsast í einkamál). Hingað inn á safnið kemur oft indæll drengur frá Tailandi sem ég hef aðeins spjallað við. Hann á við sama vandamál að stríða og þín Gam. Það talar enginn við hann. Til að hressa aðeins upp á tilveruna hjá honum þá sýndi ég honum myndirnar af Gam á síðunum þínum og það hýrnaði yfir honum og hann sagðist hafa komið í heimsókn til ykkar.
Skilaðu góðri kveðju til Guðnýjar.

 
At 08 september, 2006 10:57, Blogger Sigga said...

Sæl kæra vinkona!
Þetta var alveg frábær dagur, en ég skammast mín samt að hafa pínt þig til að sitja út á palli allan daginn...bara af því að ég var nýbúin að kaupa mér garðhúsgögn!! Og svo mauluðum við rúnnstykki allan daginn.... sem þú komst með í þokkabót. Næst hef ég aðeins meira fyrir þér!!
Lítill þessi heimur. Já, því miður var ég ekki heima þegar Bam (ég held ég farið rétt með nafnið) kom í heimsókn og hann var farinn þegar ég kom heim. Við eigum örugglega eftir að hittast...bráðlega.
Við keyrðum dúlluna okkar út á flugvöll í nótt. Hún stóð sig vel sú stutta, yfirveguð og glöð þegar hún kvaddi okkur og vinkonur sínar.
Og að lokum ertu ekki að hnýsast!! Mér finnst gaman að þú skulir lesa bloggið.

 

Skrifa ummæli

<< Home