29.9.06

Á ferð og flugi

Þessi blogger er að stríða mér, ég hef ekki getað sent út færslur í marga daga. Hér kemur ein sem farið er að slá í enda síðan á þriðjudag. Sendi hana í gegnum Picasa og ætla að athuga hvað gerist.
----
Hvað er eiginlega í gangi upp á Hellisheiði eða á Hengilssvæðinu? Fyrir stuttu var bara einn reykjabólstur en í dag taldi ég sjö bæði á suður (eða vestur) og austur leið. Svæðið er eins og gatasigti. Sjálfsagt verður svæðið eins og víravirki áður en langt um líður.

Í Þrengslunum í dag þurfti ég að stoppa (eða hægja verulega á ferðinni) þegar bíldrusla sem ók á móti mér fór yfir á hinn vegarhelminginn eins og ekkert væri eðlilegra. Ökumaðurinn sá að sér eftir stund en var ekkert að flýta sér að rétta bíllinn af. Mér fannst hann vera að ögra mér. Bílstjórinn var með flókahatt og líktist Woody Allen en mér fannst þetta samt vera kvenmaður. Þetta var semsagt á leiðinni í bæinn. Á leiðinni heim í Svínahrauni ók ég eftir bíl sem var með svarta dulu í afturglugganum, hélt á tímabili að þetta væri líkbíll því hann fór ekki yfir áttatíu og svo var þetta skutbíll. Þegar ég nálgaðist bílinn sá ég að það var mynd af hauskúpu á dulunni. Ég var ekki lengi að gefa í og fara fram úr, mér fannst viðbjóðslegt að hafa þetta fyrir augunum. Leit til hliðar til að athuga hvað “gúlli” væri þarna ferð. Undir stýri sat ljóshærður fallegur unglingsdrengur svona týpískur SS drengur. Mér datt helst í hug að það væri eitthvert umferðarátak í gangi. Woody Allen að keyra í veg fyrir mig til að ég hægði á mér og ljóshærði unglingurinn að minna á hætturnar í umferðinni.

Í dag lærði ég að búa til hreyfimyndir á mjög einfaldan hátt.

Hvað finnst ykkur að borga 470 kr. fyrir súkkulaðibolla með litlum rjóma á Mokka?

Í skólanum var skemmtileg uppákoma á degi Evrópska tungumáladagsins sem í okkar skóla var alþjóðlegur tungumáladagur. Krakkar frá sjö löndum fluttu frumsamið ævintýri um prinsessu á sjö tungumálum (í skólanum eru töluð ellefu tungumál). Eina orðið sem skildist á nokkrum tungumálunum var prinsessa. Mér fannst ég þó heyra nokkrum sinnum babúska hjá rússneska nemandanum. Þakka Sigrúnu Berglindi fyrir góða hugmynd.

“Systir” prinsessunnar á Ítalíu hringdi til að þakka fyrir afmælisgjöf sem við sendum henni. Ég talaði að sjálfsögðu við prinsessuna mína líka. “Foreldrarnir” biðja alltaf voða vel að heilsa. Posted by Picasa

2 Viltu tjá þig?

At 01 október, 2006 17:12, Anonymous Nafnlaus said...

Var Woody á rauðum, litlum bíl?

 
At 01 október, 2006 22:55, Blogger Sigga said...

Ég held það bara.

 

Skrifa ummæli

<< Home