Hvað þýðir busi?...

...spurði Gam þegar ég kom að sækja hana í skólann á föstudaginn eftir busavígsluna. BUSI var skrifað yfir hálft andlitið á henni. Ég reyndi að útskýra fyrir henni, en var þó ekki viss, að það væri að vera klaufalegur og busi væri sá sem væri að byrja í skóla.
Henni þótti þetta skemmtilegur dagur sem endaði á Busaballi á Borg í Grímsnesi. Þær fóru “systurnar”. Ballið var cool að henni fannst en hún var alveg bit á að allir unglingarnir skyldu vera fullir og reykja eins og strompar. Og það sem kom henni algjörlega í opna skjöldu var að allir þekktu hana og töluðu við hana á ballinu.
En Adam var ekki lengi í Paradís í dag mundi enginn eftir ballinu...
Sigríður Guðnadóttir 
0 Viltu tjá þig?
Skrifa ummæli
<< Home