Líður Gam vel?
Hún hefur talað í símann í meira en klukkutíma samfleytt þegar vinkona hennar sem dvelur á Höfn hringdi í hana. Á meðan hún lét dæluna ganga og skríkti þess á milli labbaði hún um gólf, inn í flest herbergi, flatmagaði í sófanum og kíkti ofan í pottana hjá mér. Þegar hún loksins lagði tólið á sagði hún mér frá ýmsu sem þær stöllur höfðu verið að tala um eins og Busavígsluna í skólanum. Hún situr við tölvuna og er á spjallrásum þegar hún kemur því við.Hún hefur áhyggjur af því hvað hún hefur þyngst og fór fínt í að segja mér að ég notaði of mikinn ost í matargerðina. Mér finnst hún hugsa vel um hvað hún lætur ofan í sig. Hún borðar ekki sælgæti né drekkur gos og drekkur mikið af vatni. Á þetta benti ég henni. Vandinn er sennilega sá að hún fær sér of oft á diskinn eins og svo margir aðrir. Auðvitað er ég afar ánægð með það því það hlýtur að vera meðmæli með matseld minni sem ég hef lagt mig meira fram við en oft áður. Ég held ég passi nú orðið vel inn í Slow food hreyfinguna sem var stofnuð á Ítalíu fyrir rúmum tuttugu árum.
Á sunnudaginn fór fósturdóttirin í ferð að Seljalandsfossi (myndina tók Mats Wibe Lund) ásamt skiptinemunum í FSU. Tvær stelpur nýkomnar úr skiptinemadvöl vildu endilega gera eitthvað fyrir skiptinemana þar sem þeim finnst þeir svo afskiptir í skólanum, sem satt er. Þær sögðu að það væri allt öðruvísi komið fram við skiptinema úti heldur en hér. Allir væri vingjarnlegir og forvitnir um þá og fólk væri upp með sér að þekkja skiptinema. En viðkvæðið hjá krökkunum í skólanum hér væri að skiptinemarnir væru allt örðuvísi og þeir kæmu þeim ekkert við. Þegar sú stutta kom heim úr ferðinni sagði ég henni að ég ætlaði ekkert að elda í kvöld hafa bara snarl. Það kom svolítið á mína en hún lét það gott heita. Stuttu seinna kom hún til mín og spurði mig af hverju ég ætlaði ekki að elda og í rödd hennar mátti greina vonbrigði.
Ég held að við séum heppin með fósturdóttur, hún er kurteis og fyrirmyndar unglingur svolítil dekurrófa enda einkabarn foreldra sinna sem sakna hennar mikið.
Sigríður Guðnadóttir 
1 Viltu tjá þig?
Hún er frábær...og hún er líka mjög heppin með fósturforeldra :-)
Skrifa ummæli
<< Home