Réttardagur
Það bregst ekki að það er alltaf gott veður í réttunum. Veðrið var yndislegt í gær enda var réttardagurinn, þegar ég segi réttardagur þá er þar átt við réttirnar í Tungunum. Ég hef aldrei farið í aðrar réttir á Suðurlandi en Tungnaréttir (fór í réttir fyrir norðan, þegar ég bjó þar) fyrr en í gær, þá fór ég í Skeiðaréttir. Ástæðan var einföld mig langaði að sína skiptinemanum mínum fjárréttir. Þær eru fallegar réttirnar á Skeiðunum hlaðnar grjóti og þar var fullt af fé...og fólki. Múgur og margmenni. Þarna kvikmyndaði ég Gam í réttunum bak og fyrir því ég ætla að nota upptökurnar á námskeiðinu á þriðjudaginn. Ég þekkti engan þarna í réttunum en það var annað upp teningnum þegar við fluttum okkur í fjárlausu réttirnar í Tungunum. Þar þekkti ég annan hvern kjaft og smellti kossum til hægri og vinstri þangað til að ég sá ekki út um gleraugunum því þau voru orðin svo kámug eftir allt þetta klossaflens.Í fjárlausu réttunum var keppt í bændaglímu sem mér fannst mjög gaman að sjá. Rúnar Guðmundsson frændi minn frá Vatnsleysu stóð sig vel í glímunni, en síðast þegar ég sá glímukeppni var ég stelpuhnokki á héraðsmóti á Álfaskeiði og þar keppti Sigurður Erlendsson bóndi á Vatnsleysu afi Rúnars. Gott ef hann var ekki glímukóngur.
Það var fleira gert en að glíma í fjárlausu réttunum. Uppboð á kvígum, hestum og örugglega einhverju fleiru, en ég nennti ekki að fylgjast með því, mér fannst skemmtilegra að rölta um og hitta fólk og spjalla. Við fórum svo í dásamlega kjötsúpu á Heiði hjá Sigga frænda.
-----
Ég hef aldrei gengið Nesið hér í Þorlákshöfn í eins frábæru veðri eins og í gær. Það var glampandi sólskin um sexleytið og bærðist ekki hár á höfði. Friðsældin og fegurðin dásamleg. Ég bað Gam að muna vel eftir þessum degi, þetta er nefnilega fyrsti virkilega góði dagurinn (veðurlega séð) síðan hún kom til landsins. Hún naut hans fram í fingurgóma (hver er nú skýringin á þessu orðatiltæki?).
Helga Jóna og Óskar komu með okkur úr réttunum. Við borðuðum og horfðum á Jón Ólafs og Spaugstofuna í sjónvarpinu. Ég reyndi að útskýra fyrir Gam innihald þáttanna, gafst þó fljótlega upp á því þegar við horfðum á Spaugstofuna. Hún skellti þó uppúr þegar hún sá strákana í gervi Supernova gauranna. Þeir voru flottir.
Sigríður Guðnadóttir 
1 Viltu tjá þig?
Ohh...ég komst ekki í réttirnar þetta árið. Fer næst, enda verða komnar kindur þá. Veðrið gat nú ekki orðið betra :-)
Skrifa ummæli
<< Home