7.10.06

Til hamingju Guðný mín

5. október
Síðbúin kveðja til Guðnýjar minnar sem átti afmæli á fimmtudag 5. október. Hún hélt upp á 18 ára afmælið sitt víðs fjarri fjölskyldunni. Þegar við töluðum við hana þá var hún að bíða eftir þriðja réttinum á góðum veitingastað í Novara. Hún var að snæða með Silavana (mömmu), Claudio (pabba) og Diane (systur) ásamt ömmunum tveimur. Hún var búin að fá afmælisgjafir frá Íslandi, fósturfjölskyldunni, ömmunum og skólasystrum sínum á Ítalíu. Hljóðið var gott í henni. Það er töggur í henni þó fari ekki mikið fyrir henni.

Hún hefur alltaf verið ákveðin á sinn ljúfa hátt. Hún ruddist sér leið inn í móðurkvið þó henni hafi ekki verið boðið formlega þangað. En er þangað var komið var henni tekið fagnandi og upp frá því hefur fagnaðarlátunum aldrei lint. Eitthvað gerði móðurkviðurinn uppsteyt eftir tveggja mánaðar meðgöngu og vildi ryðja henni úr vegi. Hún tók það ekki í mál og beið átekta meðan öldurnar lægði. Allt leit þetta vel út um nokkurra mánaðarskeið þar til hættumerkin fóru að segja til sín. Líkaminn sem hún hafði valið og tekið sér bólfestu í var bara lélegur. Hann þoldi ekki þetta álag, tútnaði allur út og gerðist mjög ófrýnilegur. Hún gafst ekki þó hún fengi enga næringu. Hún fór í hungurverkfall. Líkamsdruslan varð lélegri með hverjum degi sem leið. Læknayfirvöldin á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri tóku í taumana þegar hættuástand skapaðist. Fimm vikum fyrir tímann var henni kippt inn í þennan heim. Prinsessan (hún var aldrei kölluð annað á spítalanum) var aðeins sjö merkur og ákvað að láta þessar raunir ekki á sig fá. Hún dvaldi á fæðingardeildinni með móðurmyndinni í mánuð í mjög góðu yfirlæti þangað tími var kominn til að halda heim ...Og þá var kátt í höllinni...

Afmælisdagur prinsessunnar var semsagt tregablandinn hjá mér í ár.

4.10.06

Alla leið að norðan

Steingerður Ágústa dóttir mín er búin að vera hér sunnan heiða síðan á laugardaginn, fjölskyldunni til mikillar ánægju. Hún fór heim í morgun. Hún var að líta í kringum sig eftir húsnæði. Það stendur til að hún flytji í vor á Suðurlandið þegar krakkarnir eru búnir í skólanum. Það verður frábært að fá hana suður. Leiðinlegt að hafa hana svona langt í burtu á hjara veraldar í hvalabænum Húsavík sem er í Sveitarfélaginu Húsavíkurbæjar sem varð til árið 2002 við sameiningu Húsavíkurkaupstaðar og Reykjahrepps og nær norðan frá Reyðará á Tjörnesi, við austanverðan Skjálfandaflóa, suður í Reykjahverfi. Þessu var ég nú búin að gleyma en það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég las þetta á síðu sem heitir Noðurþing.

3.10.06

Hann á afmæli í dag

Sigurður Ágúst er fimmtán ára í dag. Hann er fyrsta barnabarnið mitt. Hann fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ég man vel eftir fæðingunni. Ég spígsporaði á ganginum fyrir framan fæðingastofuna og beið eftir að heyra barnsgrát. Fæðingin gekk erfiðlega fyrir sig og því fékk ég ekki að vera viðstödd. Það var samt gaman og spennandi að fylgjast með fæðingunni fram á gangi.Til hamingju elsku drengurinn minn!